Stelpurnar í KA/Þór sóttu tvö stig á Selfoss
KA/Þór vann afar mikilvægan sigur, 32:28, á liði Selfyssinga á útivelli í dag í Olísdeild kvenna, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta.
Stelpurnar okkar mjakast þar með af mesta hættusvæðinu; eru komnar með átta stig í sjötta sæti. Selfyssingar eru næst neðstir með fjögur stig og lið HK neðst með tvö stig.
KA/Þór var yfirleitt skrefi á undan fyrri hluta leiksins og hafði tveggja marka forskot í hálfleik, 19:17. Seinni hálfleikur var mjög jafn framan af eftir að gestirnir komust fimm mörkum yfir, 25:24, um miðjan hálfleikinn var ljóst að verkefni heimaliðsins var orðið snúið. KA/Þór gaf ekkert eftir og vann örugglega.
Mörk KA/Þórs: Rut Arnfjörð Jónsdóttir 11, Nathalia Soares Baliana 6, Kristín A. Jóhannsdóttir 3, Júlía Björnsdóttir 3, Unnur Ómarsdóttir 3, Lydía Gunnþórsdóttir 3, Hildur Lilja Jónsdóttir 3.
Varin skot: Matea Lonac 12.
Smellið hér til að sjá nánari tölfræði.