Slakur fyrri hálfleikur varð KA-mönnum að falli
Afleitur fyrri hálfleikur varð KA að falli í dag þegar FH kom í heimsókn í Olís deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta. FH-ingar unnu 30:27 eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 19:12.
Gestirnir voru miklu betri í fyrri hálfleik og náðu mest átta marka forystu. Sóknarleikur KA-manna var slakur og Phil Döhler, markvörður FH, var þeim líka afar erfiður. KA-liðið er þekkt fyrir allt annað en að gefast upp og þrátt fyrir erfiða stöðu í hálfleik var enga uppgjöf að sjá. KA-menn náðu að minnka muninn í eitt mark en aldrei að jafna.
Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 6 (3 víti), Einar Birgir Stefánsson 5, Dagur Gautason 5, Gauti Gunnarsson 5, Arnór Ísak Haddsson 3, Dagur Árni Heimisson 2 og Patrekur Stefánsson 1.
Varin skot: Bruno Bernat 8 – 40% og Nicholas Satchwell 5 (1 víti) – 23%
FH fer með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar, hefur 12 stig, en KA er í áttunda sætinu með sex stig.
Smellið hér til að sjá alla tölfræði úr leiknum.