Slæmur skellur Þórs í botnslag gegn Blikum
Þórsarar töpuðu illa fyrir Breiðabliki í gær, 122:94, í botnslag efstu deildar Íslandsmótsins í körfubolta, Subway deildinni. Þór var án stiga fyrir leikinn í Kópavogi en Blikar höfðu nælt í tvö stig.
- Skorið í hverjum leikfjórðungi: 23:23 – 39:20 – 62:43 – 31:26 – 29:25 – 122:94
Þórsarar byrjuðu vel en Blikarnir völtuðu yfir gestina í öðrum leikhluta og eftir það varð ekki aftur snúið. Þórsarar hafa þar með tapað fyrstu átta leikjunum í deildinni og er enn án stiga en þar fyrir ofan eru Breiðablik, ÍR og Vestri með 4 stig. Það er því deginum ljósara að leikmenn Þórs þurfa heldur betur að gyrða sig í brók ef ekki á illa að fara.
Tveir útlendinganna sem gengu til liðs við Þór í haust heltust úr lestinni vegna meiðsla eins og áður hefur komið fram en nú hefur verið fyllt í þeirra skörð; Jeremey Landenbergue var með liðinu öðru sinni í gær og Reginald Keely tók þátt í fyrsta leiknum.
Smellið hér til að lesa ítarlega umfjöllun Vísis.
Smellið hér til að sjá alla tölfræði úr leiknum.