Sigurður Marinó leggur fótboltaskóna á hilluna
Sigurður Marinó Kristjánsson hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna, 32 ára að aldri. Hann lék allan ferilinn með Þór, nema sumarið 2018 með Magna á Grenivík og einn leik með Grenivíkurliðinu í sumar sem lánsmaður frá Þór.
Sigurður Marinó er einn leikjahæsti leikmaður í sögu Þórs. Hann á að baki 331 leik í öllum mótum, þar af 56 leiki í efstu deild. Hann lék fyrst með meistaraflokki í næst efstu deild Íslandsmótsins árið 2007, þá aðeins 16 ára.
Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, heiðraði Sigurð Marinó fyrir leikinn gegn Grindvíkingum á laugardaginn í lokaumferð Lengjudeildar Íslandsmótsins.
Sigurður Marinó er annar tveggja leikmanna sem hafa skorað þrennu fyrir íslenskt félag í Evrópukeppni; hann afrekaði það þegar Þórsarar sigruðu írska liðið Bohemians á Þórsvellinum 5:1 árið 2012. Sveinn afhenti Sigurði m.a. tvær innrammaðar ljósmyndir; annars vegar af Sigurði snúa frá marki eftir að hafa skorað eitt markanna í Evrópuleiknum og hinsvegar af honum í fagnaðarlátunum eftir leik.
Sigurður Marinó augnabliki eftir að hann gerði eitt markanna þriggja í Evrópuleiknum gegn Bohemians árið 2012. Önnur myndanna sem knattspyrnudeild Þórs færði Sigurði innrammaða. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson