Fara í efni
Íþróttir

Sigþóra stórbætti sig í Berlínarmaraþoninu

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir eftir maraþonið í Berlín. Mynd af heimasíðu UFA.

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir hlaupakona úr Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) stórbætti eigin árangur í maraþonhlaupi þegar hún fór vegalengdina á 2 klst, 53,19 mín í Berlín í gær. Þetta kemur fram á vef UFA.

Tími Sigþóru er fimmti besti tími íslenskrar konu í maraþoni frá upphafi. „Sigþóra útfærði hlaupið vel, hljóp fyrri hluta þess á mjög jöfnum hraða en jók hraðann svo í seinni hlutanum og tók góðan endasprett. Berlíarmaraþon er eitt fjölmennasta maraþon veraldar og keppendur í dag voru um 35.000. Sigþóra var 42. kona í mark og fimmtánda í sínum aldursflokki. Sigþóra hefur átt mjög gott keppnistímabil í sumar. Hún hefur bætt árangur sinn í jafnt styttri og lengri vegalengdum og landað nokkrum Íslandsmeistaratitlum,“ segir á vef UFA.