Íþróttir
Sigfús Fossdal er Aflraunameistarinn
24.06.2023 kl. 18:00
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Akureyringurinn Sigfús Fossdal ber titilinn Aflraunameistari Íslands eftir sigur í keppni með því nafni við menningarhúsið Hof á Akureyri í dag. Þar var keppt í nokkrum kraftagreinum. Á myndinni er Sigfús með sigurbikarinn.
Íslandsmót drumbalyftu fór einnig fram við Hof í dag: Íslandsmeistari kvenna varð Ragnheiður Jónasdóttir; hún lyfti 101 kílói, sem er nýtt Íslandsmet. Í karlaflokki bar Kristján Sindri Níelsson sigur úr býtum. Hann og Sigfús Fossdal lyftu báðir 165 kg, en Kristján telst sigurvegari.
Nánar síðar