Fara í efni
Íþróttir

Sex Akureyringar fara á HM í utanvegahlaupum

Þorbergur Ingi Jónsson og Rannveig Oddsdóttir eftir sigur í 55 km, lengsta hlaupi Súlur Vertical á síðasta ári. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Sex Akureyringar eru í 12 manna landsliði Íslands sem valið hefur verið fyrir heimsmeistaramótið í utanvegahlaupum sem haldið verður í Austurríki í byrjun júní.

  • Þorbergur Ingi Jónsson og Rannveig Oddsdóttir munu keppa í 85 km hlaupi með 5500 samanlagðri hækkun.
  • Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, Anna Berglind Pálmadóttir, Halldór Hermann Jónsson og Jörundur Frímann Jónasson keppa í 45 km hlaupi með 3100 m samanlagðri hækkun. 

Á vef Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) segir að ákveðið hafi verið að senda allra sterkasta lið sem völ væri til keppni í Austurríki. 

„Landslið Íslands er blanda af reynsluboltum og okkar efnilegustu hlaupurum. Liðið er skipað sex hlaupurum af hvoru kyni og hefur hópurinn aldrei verið fjölmennari. Það sýnir líka þann mikla áhuga sem er á utanvegahlaupum á Íslandi.“

„Eins og áður mæta til leiks allir sterkustu utanvegahlauparar heims. Keppt verður í tveimur vegalengdum, 45km hlaup með 3100m samanlagðri hækkun en þar reynir mikið á hraða hlaupara, og svo 85km hlaup með 5500m samanlagðri hækkun þar sem klifurtækni og úthald spila stórt hlutverk.“

Nánar hér á vef FRÍ.