Íþróttir
SA stelpurnar gerðu 19 mörk gegn SR
31.01.2021 kl. 21:15
Hilma Bergsdóttir gerði fjögur mörk í dag. Hér er hún með pökkinn í leik SA og SR á Akureyri í gær. Ljósmynd: Þórir Tryggvason.
Stelpurnar í Skautafélagi Akureyrar burstuðu lið Skautafélags Reykjavíkur í annað sinn á jafnmörgum dögum í Hertz-deild kvenna í íshokkí í dag. SA vann 17:2 í gær og 19:0 í dag. Tvær fyrstu loturnar í dag fóru 6:0 og sú þriðja 7:0. SA hefur þar með unnið alla þrjá leikina í deildinni.
Hilma Bergsdóttir og Ragnhildur Kjartansdóttir gerðu 4 mörk hvor í dag, Berglind Leifsdóttir, Arndís Sigurðardóttir og Jónína Guðbjartsdóttir 2 mörk hver og Inga Aradóttir, Saga Sigurðardóttir, Teresa Snorradóttir, María Eiríksdóttir og Katrín Björnsdóttir eitt hver.