SA stelpurnar einum sigri frá meistaratitli
Kvennalið Skautafélags Akureyrar sigraði Fjölni 4:2 í Egilshöll í Reykjavík í dag, í öðrum úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí. SA vann fyrsta leikinn á heimavelli á fimmtudagskvöldið eftir vítakeppni og Akureyringar verða meistarar nái þeir að sigra þegar liðin mætast í þriðja sinn á þriðjudagskvöldið í Skautahöllinni á Akureyri.
Fjölnir gerði eina mark fyrsta leikhluta í dag. Þar var Sigrún Árnadóttir á ferðinni en Stelpurnar okkar í SA snéru leiknum sér í hag í öðrum leikhluta með því að gera þrjú mörk; Katrín Björnsdóttir, Herborg Geirsdóttir og Hilma Bergsdóttir skoruðu. Liðin gerðu svo sitt hvort markið í lokaleikhlutanum, fyrst skoraði Kolbrún Garðarsdóttir fyrir Fjölni og það var Herborg Geirsdóttir sem gulltryggði sigur SA með öðru marki sínu í leiknum, þegar rúmlega tvær og hálf mínúta var eftir.
Smelltu hér til að sjá leikskýrsluna.
- Þriðji og hugsanlega síðasti leikurinn verður þriðiudaginn 7. mars í Skautahöllinni Akureyri kl. 19:30
- 4. leikur – ef með þarf – 9. mars í Egilshöll kl. 19:30
- 5. leikur – ef með þarf – 11. mars í Skautahöllinni Akureyri kl. 16:45