SA-ingar burðarásar í stórsigri á Búlgaríu
Ísland hóf keppni í B-riðli 2. deildar HM í íshokkí í gær með stórsigri á Búlgaríu, 10:2. Keppt er í Skautahöllinni í Laugardal.
Jóhann Már Leifsson, leikmaður Skautafélags Akureyrar, var maður leiksins í gær, lagði upp tvö mörk og skoraði sjálfur eitt.
Mörkin þrjú sem hann kom að voru öll í samstarfi við liðsfélaga úr Skautafélagi Akureyrar svo mætti segja að uppskriftirnar hafi verið kunnulegar, eins og mbl.is orðaði það í umfjöllun um leikinn. Aðspurður um samstarf sitt við Andra Má Mikaelsson og Hafþór Andra Sigrúnarson, liðsfélaga sína hjá SA til fjölmargra ára hafði Jóhann þetta að segja:
„Við erum búnir að spila saman í mörg ár. Við vitum alltaf hvert við eigum að setja pökkinn því við vitum alltaf hvert hinir eru að fara. Það er rosalega auðvelt að spila með þeim.“
Smellið hér til að lesa umfjöllun mbl.is um leikinn. Hér er viðtal við Jóhann Má Leifsson og hér við Andra Má Mikaelsson.