Öruggur sigur Þórs í fyrsta heimaleiknum
Þór sigraði Snæfell býsna örugglega, 79:67, í 1. deild kvenna í körfubolta, næst efstu deild Íslandsmótsins, í Íþróttahöllinni í kvöld. Liðið hefur þar með unnið fyrstu tvo leikina í deildinni, það lagði Ármann að velli í Reykjavík í fyrstu umferð.
Þetta var langþráð stund því Þórsarar tefldu ekki fram kvennaliði síðustu tvo vetur. Leikurinn var þar af leiðandi sá fyrsti á heimavelli síðan vorið 2019.
Þórsliðið fór rólega af stað, gestirnir höfðu yfirhöndina til að byrja með eftir að þeir skoruðu úr nokkrum þriggja stiga skotum, en Þór var kominn yfir áður en fyrsti leikfjórðungur var úti og hélt forystu allan tímann.
Frammistaða Þórsara í kvöld:
- Marín Lind Ágústsdóttir 15 stig, 9 fráköst, 4 stoðsendingar
- Hrefna Ottósdóttir 14 stig, 12 fráköst, 4 stoðsendingar
- Karen Lind Helgadóttir 12 stig, 3 fráköst
- Rut Herner Konráðsdóttir 11 stig, 6 fráköst, 2 stoðsendingar
- Kristlaug Eva Wium Elíasdóttir 10 stig, 4 fráköst, 4 stoðsendingar
- Heiða Hlín Björnsdóttir 7 stig, 7 fráköst, 6 stoðsendingar
- Ásgerður Jana Ágústsdóttir 5 stig, 5 fráköst, 1 stoðsending
- Katla María Magdalena Sæmundsdóttir 3 stig, 1 stoðsending
- Hrafnhildur Magnúsdóttir 2 stig, 3 fráköst, 3 stoðsendingar
- Þórsarar tóku 37 fráköst í vörn og 12 í sókn.
Smellið hér til að sjá alla tölfræði leiksins.
Tvö viðtöl sem tekin voru eftir leik eru á heimasíðu Þórs – hér er rætt við Marín Lind Ágústsdóttur og hér við Daníel Andra Halldórsson, þjálfara.
Heiða Hlín Björnsdóttir átti 6 stoðsendingar í kvöld. Sianni Amari Martin, til hægri, var yfirburðamaður í liði gestanna, gerði 40 stig.