Öflugt teymi – aukin samvinna milli flokka
Stjórn Þórs/KA hefur lokið við að mynda öflugt þjálfarateymi í kringum starfsemi félagsins, en Þór/KA rekur meistaraflokk, 2. flokk og 3. flokk kvenna í knattspyrnu undir sínum merkjum. Ráðning þjálfara og samsetning teymisins gengur meðal annars út á aukið samstarf og tengsl milli meistaraflokks og yngri flokkanna, að því er segir í tilkynningu.
Flestir þeirra þjálfara sem nú hafa undirritað samninga við félagið höfðu þegar hafið störf þegar æfingar hófust í október og nóvember, en nú má segja að teymið í kringum alla flokka félagsins sé fullmyndað og tilbúið í slaginn.
„Áður hafði Jóhann Kristinn Gunnarsson skrifað undir samning sem aðalþjálfari meistaraflokks, en undanfarið hefur verið unnið að því að raða í störf í þjálfarateyminu og mynda öflugt teymi til að halda utan um hinn stóra og öfluga hóp sem félagið býr að í meistaraflokki og 2. og 3. flokki. Sú breyting verður meðal annars með undirskriftum núna að þjálfarar yngri flokkanna verða einnig hluti af þjálfarateymi meistaraflokks og samvinna og tengsl á milli flokkanna aukin frá því sem áður hefur verið.“
Í dag bættust formlega í þjálfarateymið, með undirskriftum, þau Aron Birkir Stefánsson, Ágústa Kristinsdóttir, Birkir Hermann Björgvinsson, Egill Ármann Kristinsson, Hulda Björg Hannesdóttir, Sigurbjörn Bjarnason, Siguróli Kristjánsson og Pétur Heiðar Kristjánsson.
Þjálfarateymið verður þannig skipað:
- Jóhann Kristinn Gunnarsson, aðalþjálfari meistaraflokks
- Pétur Heiðar Kristjánsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks, aðalþjálfari 2. flokks og afreksþjálfari yngri flokka
- Ágústa Kristinsdóttir, yfirþjálfari yngri flokka og annar aðalþjálfara 3. flokks
- Birkir Hermann Björgvinsson, aðstoðarþjálfari 2. flokks
- Hulda Björg Hannesdóttir, annar aðalþjálfara 3. flokks
- Aron Birkir Stefánsson, markvarðaþjálfari allra flokka
- Siguróli Kristjánsson, yfirmaður knattspyrnumála og hugarfarsþjálfari
- Egill Ármann Kristinsson, styrktarþjálfari
- Sigurbjörn Bjarnason, styrktarþjálfari
Þjálfarateymið, raðað eftir flokkum:
- Meistaraflokkur: Jóhann Kristinn og Pétur Heiðar
- 2. flokkur: Pétur Heiðar, Birkir Hermann
- 3. flokkur: Ágústa, Hulda Björg
- Markverðir: Aron Birkir
- Styrktarþjálfun: Egill Ármann og Sigurbjörn
- Siguróli Kristjánsson – eða Moli eins og flestir þekkja hann – „mun gegna fjölbreyttu og víðtæku hlutverki með öllu þjálfarateyminu. Hann mun meðal annars vinna með leikmönnum varðandi hugarfarsþjálfun og verða þjálfarateyminu til ráðgjafar á breiðum grundvelli.“
Í tilkynningunni segir ennfremur: „Um alla þessa þjálfara og ferilskrá þeirra mætti skrifa langar fréttir og margar því flestir þessara einstaklinga hafa langa reynslu á sínu sviði. Mörg þeirra hafa starfað hjá Þór/KA áður og þekking þjálfarateymisins á leikmannahópum flokkanna því mikil og mun koma sér vel í því starfi sem fram undan er. Stjórn Þórs/KA bindur miklar vonir við þennan öfluga hóp og býður nýtt og eldra starfsfólk velkomið til starfa.“