Óðinn Þór valinn til landsliðsæfinga
Óðinn Þór Ríkharðsson, hornamaðurinn snjalli í KA, er í 21 manns æfingahópi sem Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í handbolta hefur valið og kemur saman 14. til 20. mars.
Íslenska liðið á ekki bókaða leiki í þessari landsliðsviku þar sem liðið situr hjá í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM 2023 en mætir sigurvegurunum úr viðureign Eistlands og Austurríkis um miðjan apríl.
„Tíminn verður nýttur til æfinga en það þótt koma vel út þegar liðið hittist í nóvember til undirbúnings fyrir EM sem fram fór í janúar,“ segir í tilkynningu frá HSÍ í dag.
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (240 leikir/16 mörk)
Daníel Freyr Andrésson, GUIF (2/0)
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG Håndball (33/1)
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (67/78)
Aron Pálmarsson, Aalborg Håndbold (156/600)
Bjarki Már Elísson, TBV Lemgo Lippe (87/257)
Bjarni Ófeigur Valdimarsson, Skövde (0/0)
Daníel Þór Ingason, Bailingen-Weilstetten (36/11)
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (19/23)
Elvar Ásgeirsson, Nancy (5/12)
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (51/132)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (35/63)
Haukur Þrastarson, Vive Tauron Kielve (20/22)
Janus Daði Smárason, Fisch Auf Göppingen (54/81)
Kristján Örn Kristjánsson, Pays d´Aix Universite Club (19/19)
Orri Freyr Þorkelsson, Elverum (9/9)
Óðinn Þór Ríkharðsson, KA (14/44)
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (64/209)
Teitur Örn Einarsson, Flensburg (27/26)
Viggó Kristjánsson, TVB 1898 Stuttgart (29/68)
Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Necker Löwen (60/31)