Íþróttir
Nokkrir blakarar úr KA sköruðu fram úr í vetur
16.04.2024 kl. 14:00
Mynd af heimasíðu KA
Tveir leikmenn KA voru kjörnir í lið ársins í kvennaflokki í blaki og einn leikmaður karlaliðsins. Þá var Miguel Mateo Castrillo kosinn besti þjálfari í kvennaflokki, Julia Bonet Carreras besti erlendi leikmaðurinn og Auður Pétursdótti efnilegasti leikmaðurinn.
- Eftir að síðasta leik lauk í Unbroken deildum karla og kvenna hófst kosning, að því er segir á heimasíðu Blaksambands Íslands. Kosningarétt höfðu þjálfarar (40%) og fyrirliðar (40%) liðanna í deildunum tölfræðin yfir árið gilti 20%.
KA-fólkið sem hlaut viðurkenningu að þessu sinni:
- Julia Bonet Carreras var kjörin besti erlendi leikmaður Unbrokendeildar kvenna auk þess að vera valin í úrvalslið deildarinnar sem kantur.
- Helena Kristín Gunnarsdóttir var einnig valin í úrvalslið Unbrokendeildar kvenna sem kantur.
- Auður Pétursdóttir var kjörin efnilegasti leikmaður Unbrokendeildar kvenna. Hún er aðeins 16 ára.
- Gísli Marteinn Baldvinsson er í úrvalsliði Unbrokendeildar karla sem miðja. Hann varð þriðji blokkhæsti leikmaður deildarinnar með 49 blokkstig.
- Miguel Mateo Castrillo er þjálfari ársins í Unbrokendeild kvenna.
Nánar hér á heimasíðu KA
Frétt á heimasíðu Blaksambands Íslands
Julia Bonet Carreras var kjörin besti erlendi leikmaður Unbrokendeildar kvenna auk þess að vera valin í úrvalslið deildarinnar. Mynd af vef KA.