Fara í efni
Íþróttir

Mótmæla námsefni með grófum lýsingum á kynferðisofbeldi

Tveir nemendur Menntaskólans á Akureyri lýsa miklum áhyggjum vegna innihalds sumra námsgagna sem kennd eru við skólann. Ásdís Lind Vigfúsdóttir og París Anna Bergmann segja málið mikið hafa verið rætt af nemendum skólans og „við erum hér til að berjast fyrir þeirri breytingu að þurfa ekki að lesa ítarlegar og grófar lýsingar af kynferðisofbeldi úr námsefni í skólanum,“ segir í bréfi sem þær sendu Akureyri.net og hafa birt á samfélagsmiðlum.

Ásdís Lind og París Anna nefna bókina Blóðberg, „sem inniheldur ítarlegar lýsingar á hópnauðgun og öðru grafalvarlegu ofbeldi,“ eins og þær orða það í bréfinu. Þegar bók sem þessi er hluti af námi, „er það ekki bara fræðilegt námsefni. Það verður að sársaukafullri endurupplifun fyrir þá sem hafa gengið í gegnum slíkt í raunveruleikanum. Fyrir suma er þetta ekki bara bókmenntir, heldur hræðilegar minningar sem þau hafa reynt að vinna úr eða bæla niður. Okkur þykir það svo ótrúlega leitt að samnemendur okkar þurfi að upplifa svona vanlíðan inn í kennslustund og að vera smeykur að mæta í tíma. Jafnvel það að skrópa í tíma vegna þess að þau þora ekki að sitja og vera með í tímanum.“

Nokkrar yfirlýsingar fylgja bréfi Ásdísar Lindu og Parísar Önnu, m.a. Drífu Snædal talskonu Stígamóta, Hildu Jönu Gísladóttur bæjarfulltrúa og Erlu Hrönn framkvæmdastýru Aflsins. Þær má sjá neðst í þessari grein.

Í bréfinu segir:

„Fyrst fólk sem hefur orðið fyrir slíku ofbeldi af einhverju tagi getur ekki farið afsíðis eða labbað út án þess að upplýsa allan bekkinn sinn að þau hafa verið fyrir slíku. Við trúum því að það sé óásættanlegt að þeir nemendur sem hafa orðið fyrir einhverju formi ofbeldis eða hafa á einhvern hátt persónulega reynslu af þeim hræðilegu atburðum sem lýst er í þessum námsefnum, þurfi að upplifa vanlíðan í skólastofunni á stað þar sem þau eiga að finna fyrir öryggi og stuðningi.“

Á hópspjalli nemenda þá lögðum við fram atkvæðagreiðslu um hvað nemendum finnst um þetta ástand. 98% nemenda í skólanum (það eru 150+ nemendur) eru sammála því að þeim langar í burt með þetta.

Nemendur upplifa vanlíðan

Við höfum heyrt frá mörgum samnemendum okkar, sem hafa upplifað grafarlegan vanlíðan þegar þau hafa þurft að lesa og fjalla um efni sem fjallar um gróft ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi. Sumir þeirra hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum tengdum þessum atburðum og geta ekki lesið slík efni án þess að upplifa mikinn kvíða, stress eða jafnvel panikköst. Nemendur lýsa þessu svona:

  • Ég fæ kökk í hálsinn og hjartsláttinn eykst þegar ég sé hvaða tíma ég er að fara í
  • Ég á erfitt með að halda einbeitingu og óttast næstu kennslustund
  • Ég byrja oft að svitna eða stara á veggin, jafnvel reyni að setja tónlist í eyrun til að þurfa ekki að hlusta á þetta… eða labba bara úr stofunni

Þegar námsefni eins og bókin Blóðberg, sem inniheldur ítarlegar lýsingar á hópnauðgun og öðru grafalvarlegu ofbeldi, er hluti af námi, er það ekki bara fræðilegt námsefni. Það verður að sársaukafullri endurupplifun fyrir þá sem hafa gengið í gegnum slíkt í raunveruleikanum. Fyrir suma er þetta ekki bara bókmenntir, heldur hræðilegar minningar sem þau hafa reynt að vinna úr eða bæla niður. Okkur þykir það svo ótrúlega leitt að samnemendur okkar þurfi að upplifa svona vanlíðan inn í kennslustund og að vera smeykur að mæta í tíma. Jafnvel það að skrópa tíma vegna þess að þau þora ekki að sitja og vera með í tímanum. 

Við skiljum að það sé mikilvægt að fjalla um viðkvæm efni eins og ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi í menntun okkar. Það er alvarlegt þegar viðkomandi getur ekki fengið hvíld frá þessu námsefni án þess að þurfa að útskýra áfallasögur sínar fyrir kennurum eða samnemendum sínum vegna námsefnis. Nemendum eiga að líða vel í skólanum og ekki forðast það að mæta í tíma. Nemendur eiga að finna fyrir öryggi,
stuðningi og hvatningu
í skólanum. Skólaumhverfið ætti að skapa tilfinningu fyrir samstöðu þar sem nemendur upplifa sig örugga og geta tjáð sig og unnið með námsefnið á frjálsan hátt.

Þau eiga að finna fyrir tilfinningalegu öryggi, lausar við námsefni eða aðstæður sem gætu valdið kvíða, ótta eða vanlíðan. Skólinn ætti að vera staður þar sem nemendur geta einbeitt sér að námi án þess að upplifa tilfinningalegt álag. Kennarar og starfsfólk ættu að veita nemendum bæði tilfinningalegan og námslegan stuðning. Nemendur eiga að upplifa að þau geti fengið hjálp þegar þeir þurfa á henni að halda, hvort sem það er vegna námsins eða andlegrar heilsu.

Skólinn á að vera staður þar sem nemendur geta þroskast bæði námslega og persónulega, í umhverfi sem styður vellíðan þeirra og gerir þeim kleift að upplifa sig örugga og metna.

Við höfum barist fyrir þessari breytingu lengi. Ekki þá bara í okkar skóla heldur er markmiðið að bæta þetta í öllum framhaldsskólum landsins. Aðeins að segja nemendum að leita sér hjálpar er ekki nóg þegar orsökin er of gróft námsefni. Það ætti ekki að vera svo erfitt fyrir skólann að finna aðrar bækur eða verkefni sem eru ekki með grófar lýsingar af nauðgun og ofbeldi. Það er til alveg fullt af fræðandi og áhrifamiklum bókmenntum sem kennarar geta fjallað um án þess að valda nemendum kvíða eða
vanlíðan.

Barnasáttmálinn og hagsmunir barna

Við teljum að það sé brýnt að þessi mál séu tekin alvarlega í ljósi 3. greinar Barnasáttmálans, „það sem barni er fyrir bestu“, þetta ætti að vera í forgangi. Það er augljóslega ekki barninu fyrir bestu að láta það lesa lýsingar af grófu ofbeldi eða upplifa vanlíðan vegna námsefnis í skóla, sérstaklega þegar þeir sem hafa orðið fyrir slíkum atburðum þurfa að upplifa gamla áföll ítrekað. 

Aðgangur að menntun og markmið hennar

Í grein 28 „aðgangur að menntun“ og 29 „markmið menntunar“. Þar kemur fram að börn eigi að vera hvött til menntunar og stuðningur við andlega heilsu þeirra skiptir miklu máli. En hvernig geta nemendur verið hvattir til að læra og mennta sig ef námsefnið veldur þeim slíkri vanlíðan? Að láta ungmenni taka þátt í slíku námsefni sem brýtur niður andlega heilsu þeirra getur haft alvarlegar afleiðingar, svo sem að nemendur hætti í ákveðnum áföngum eða jafnvel gefist upp á skólagöngu sinni því þau þurfa að ná
ákveðnum kjarnaáfanga til þess að útskrifast.

Áhrif á framtíð nemenda

Þetta er ekki bara tilfinningalegt vandamál. Það er einnig fræðilegt. Þegar nemendur upplifa slíka vanlíðan í kennslustofunni, hverfur getu þeirra til að einbeita sér að náminu. Margir hafa talað um að þeim finnst þeir einfaldlega ekki geta unnið vel í skólanum þegar námsefnið veldur kvíða eða minnir þá á gamla áföll. Þau finna fyrir óöryggi, ótta og streitu sem hefur bein áhrif á námsárangur þeirra. Þau sitja t.d. Í stærðfræðitíma stressuð fyrir næsta tíma, missa einbeitingu og fá ömurlegar minningar í hausin. Sumir fara kannski heim í uppnámi úr skólanum sem gerir það að þau missa af restinni af skóladeginum, vilja kannski bara ekki yfir höfuð mæta í skólan vegna vanlíðan útaf
sumum áföngum og það getur haft gríðarleg áhrif á alla skólagönguna. Missa úr skólanum, detta aftur úr, skilja voða lítið vegna tilfinningalegs ástands, verða þreytt og sorgmædd. Sem væri hægt að koma í veg fyrir ef ákveðið námsefni væri ekki. En það að kjarnaáfangar séu með slíku námsefni er ömurlegt.

Okkar krafa um breytingar

Við krefjumst þess að stjórnendur framhaldsskóla á Íslandi sem kunna að nota slíkt námsefni, breyti þessu fyrirkomulagi. Það ætti að vera hægt að kenna um þessu viðkvæm málefni á öruggan og tilfinningalega viðeigandi hátt, án þess að nemendur séu settir í slíka sársaukafulla stöðu. Við viljum tryggja að skólinn okkar sé staður þar sem nemendur geta lært og þroskast án þess að upplifa vanlíðan og kvíða í í kennslustundum. Það er kominn tími til að skólastofur verði öruggur staður, þar sem öllum líði vel. Er þetta í alvörunni hvernig við viljum að börn upplifi sig í skólanum?

_ _ _

Um bókina Blóðberg segir á vef Forlagsins:

  • Árið 1608 sver ung stúlka í Skagafirði, Þórdís Halldórsdóttir, eið um að hún sé hrein mey eftir að upp kemur kvittur um ástarsamband hennar við mág sinn en slíkt var dauðasök á tímum stóradóms. Fimm mánuðum síðar fæðir hún barn. Þórdís má lifa með ásökunum um blóðskömm og í trássi við landslög er henni gert að sæta pyntingum segi hún ekki til barnsföður síns. Á hverju ári ríður hún suður heiðar til að mæta fyrir Alþingi á Þingvöllum en heill áratugur líður þar til dómur er kveðinn upp.

_ _ _

YFIRLÝSINGAR SEM FYLGDU BRÉFI ÁSDÍSAR LINDAR OG PARÍSAR ÖNNU 

„Stígamót senda Ásdísi Lind og Parísi Önnu baráttu- og stuðningskveðjur. Það er mikil ábyrgð að búa til brotaþolavænt umhverfi þar sem ungt fólk, sérstaklega konur, getur verið öruggt og upplifa sem fæsta triggera. Það ber að hlusta á þær og grípa til aðgerða.“
Fyrir hönd Stígamóta, Drífa Snædal talskona.

„Miklu máli skiptir að ekki ríki þöggun á málefnum sem snúa að kynferðisofbeldi, enda er það því miður hluti af okkar veruleika. Hins vegar get ég ekki séð að þöggunin sé best rofin með því að skylda nemendur til að lesa ítarlegar og grófar lýsingar á kynferðisofbeldi. Sérstaklega þegar nemendur hafa lýst því yfir að þau vilji það ekki og að það hafi haft verulega neikvæð áhrif á sum þeirra. Ég hef skilning á þeirri upplifun og myndi sjálf ekki vilja lesa slíkar lýsingar. Ég hvet skólayfirvöld MA til þess að bregðast af nærgætni við þessari mikilvægu áskorun Parísar og Ásdísar.“Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri

„Bergið headspace vill hrósa þeim Ásdísi Lind og París Önnu fyrir að tjá sínar réttmætu áhyggjur og leggja til lausnir á erfiðu máli, það gera þær með einstaklega skýrum og ábyrgum hætti. Við viljum leggja áherslu á að hlusta beri á ungt fólk og gefa þeim færi á því að hafa áhrif á umhverfi sitt þegar ástæða er til. Við tökum ekki afstöðu varðandi námsefnisval í framhaldsskólum en viljum benda á að mikilvægt er að ungmenni upplifi sig örugg í sínu námsumhverfi til þess að líða vel og geta einbeitt sér að því sem máli skiptir.“Sigurþóra Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins headspace

„Aflið lýsir yfir fullum stuðningi við kröfur Ásdísar Lindar og Parísar Önnu. Það er mikilvægt að fræðsla um ofbeldi og afleiðingar þess séu til staðar í skólakerfinu en þegar slík fræðsla er veitt þarf að sýna nærgætni, huga þarf vel að því hvernig hún er framkvæmd, hvaða efni er notað og á hvaða forsendum. Ungmenni eiga ekki að upplifa kvíða og ótta í skólanum vegna námsefnis, en kvíði og ótti eru meðal algengustu afleiðinga ofbeldis hjá þeim sem leituðu til Aflsins árið 2023. Við hvetjum Menntaskólann á Akureyri til að endurskoða val á námsefni og að bregðast ekki nemendum sínum.“
Erla Hrönn framkvæmdastýra Aflsins

„Okkur hjá barna- og ungmennaráði heimsmarkmiða sameinuðuþjóðanna viljum að kennarar fari ýtarlega í námsefni nemanda áður en nemendur eru látnir læra tiltekin efni. Við viljum benda á að mörg börn sem og fullorðnir hafa því miður orðið fyrir allskyns áföllum sem þau eiga ekki að þurfa að minnast eða læra um í skólanum gegn þeirra vilja og leyfis. Okkur finnst að ef námsefni sem verið er að kenna sé með ofbeldi af einhverju tagi fái nemendur val um að fara í annað efni. Þá er einna helst verið að tala um bækur, en auðvitað ætti það að gilda um allt annað námsefni, því nemendur þurfa að finna fyrir öryggi og stuðningi í skólaumhverfi sínu.“
Barna- og ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

„Ungmennaráði hefur borist ákveðnar kvartanir frá nemendum MA varðandi grófs námsefnis sem kennt er. Í þessu námsefni er farið ítarlega í lýsingar kynferðisofbeldis. Margir nemendur finna fyrir óþægindum vegna lýsingar t.d. í bókinni sem nefnist Blóðberg. Ungmennaráð Akureryarbæjar talar fyrir öll ungmenni bæjarins og að öllum eigi að líða vel í sínu umhverfi. Okkur finnst mikilvægt að hugsað séð um líðan barna í skólum og að allir eigi að geta unnið að sínu námi án þess að þurfa finna til óþæginda. Ungmennaráð skorar á stjórn MA að endurskoða kennslu þessar bókar (Blóðberg) þar sem vanlíðan nemanda er óásættanleg og öllum eigi að líða vel í skólanum og hafa gaman af náminu.“
Fulltrúar Ungmennaráðs Akureyrarbæjar