Mjög sannfærandi sigur meistaranna
Íslandsmeistaralið KA/Þórs var afar sannfærandi í kvöld þegar það lagði ÍBV að velli í KA-heimilinu í Olís deildinni í handbolta. Stelpurnar okkar unnu með 10 marka mun, 34:24.
Rakel Sara Elvarsdóttir og Rut Jónsdóttir áttu báðar stórleik í sókninni, Rakel Sara gerði 11 mörk og Rut 10. Fyrri hálfleikurinn var í jafnvægi lengi en Íslandsmeistararnir spýttu í lófana undir lokin og voru komnir fimm mörkum fram úr í hálfleik, 18:13. Munurinn jókst svo jafnt og þétt í seinni hálfleik og niðurstaðan var stórsigur.
Mörk KA/Þórs: Rakel Sara Elvarsdóttir 11, Rut Jónsdóttir 10 (2 víti), Unnur Ómarsdóttir 4, Aldís Ásta Heimisdóttir 3, Ásdís Guðmundsdóttir 2, Anna Þyrí Halldórsdóttir 1, Anna Mary Jónsdóttir 1, Martha Hermannsdóttir 1 (víti) og Hildur Lilja Jónsdóttir 1 (víti). Matea Lonac varði 8 skot og Sunna Guðrún Pétursdóttir 2.
Staða efstu liða:
- Fram 18 leikir – 27 stig
- Valur 18 leikir – 26 stig
- KA/Þór 18 leikir – 25 stig
Efstu liðin þrjú eiga þessa leiki eftir:
- Fram – Afturelding (úti), Valur (heima), ÍBV (úti)
- Valur – Haukar (heima), Fram (úti), KA/Þór (heima)
- KA/Þór – HK (heima), Afturelding (heima), Valur (úti).
Smellið hér til að sjá alla tölfræði úr leiknum.
Rakel Sara Elvarsdóttir komin í dauðafæri, einu sinni sem oftar í kvöld. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.
Ásdís Guðmunsdóttir, afmælisbarn dagsins, innsiglar 10 marka sigur með síðasta marki leiksins eftir hraðaupphlaup. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.
Aldís Ásta Heimisdóttir hefur sókn og lítur í kringum sig; hún lagði upp urmul tækifæra fyrir samherjana í kvöld. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.