Íþróttir
Læknar hafa aflýst fyrstu lotu verkfalla
25.11.2024 kl. 06:00
Fyrstu lotu verkfalla lækna sem starfa hjá ríkinu, sem átti að hefjast á miðnætti í nótt, var aflýst í gærkvöldi. Ný kjarasamningur er ekki í höfn en náðst hefur samkomulag um ákveðin atriði og tilkynnt var að ekkert yrði af verkfallsgerðum sem boðaðar höfðu verið í vikunni.
Þessa viku, frá mánudegi til fimmtudags, áttu allir vinnustaðir lækna að vera í verkfælli frá miðnætti til kl. 12 á hádegi, þar á meðal Sjúkrahúsið á Akureyri og heilsugæslustöðin í Sunnuhlíð. Þar verður hins vegar allt með hefðbundnu sniði í vikunni.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, sagði í gærkvöldi að mjög hefði þokast í samkomulagsátt og kvaðst bjartsýn á að skrifað yrði undir nýjan kjarasamning á næstu dögum.