KA/Þór tapaði fyrir Haukum í Hafnarfirði
KA/Þór tapaði í dag 28:20 fyrir Haukum í Olís deild kvenna í handbolta, efstu deild Íslandsmótsins. Leikið var í Hafnarfirði.
Haukar byrjuðu mun betur en Stelpurnar okkar voru komnir einu marki yfir þegar fyrri hálfleikurinn var flautaður af, 13:12. Allt var í járnum fyrstu 10 mínútur seinni hálfleiks en þá fjarlægðust heimamenn á ný og unnu að lokum með átta marka mun.
Liðin voru jöfn fyrir leikinn en Haukar eru nú fimmta sæti með sex stig en KA/Þór í sjötta sæti með fjögur.
Mörk KA/Þórs: Nathalia Soares Baliana 9, Lydía Gunnþórsdóttir 4 (4 víti), Júlía Björnsdóttir 3, Anna Þyrí Halldórsdóttir 1, Unnur Ómarsdóttir 1, Aþena Einvarðsdóttir 1, Hildur Lilja Jónsdóttir 1.
Varin skot: Matea Lonac 9 (27,3%), Sif Hallgrímsdóttir 2 (33,3%)
Smellið hér til að sjá alla tölfræði