KA og N1 semja um áframhaldandi samstarf
Knattspyrnudeild KA og N1 hafa undirritað samning um áframhaldandi samstarf. Samningurinn felur í sér stuðning N1 við framkvæmd N1 mótsins til næstu fjögurra ára auk þess sem félagið verður aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar KA. Þetta kemur fram í tilkynningu frá N1.
N1 mótið í knattspyrnu fyrir 5. aldursflokk hófst á Akureyri í gær og stendur til laugardags, eins og Akureyri.net hefur greint frá. „Um er að ræða einn umfangsmesta íþróttaviðburð ársins en N1 er aðalstyrktaraðili mótsins og KA sér um framkvæmd þess. Alls taka um 202 lið þátt í ár og eru um 2.000 þátttakendur skráðir til leiks. Því er um að ræða eitt stærsta N1 mótið til þessa sem er það 37. í röðinni,“ segir í tilkynningunni.
„Einn af hápunktum sumarsins fyrir okkur KA-menn er þegar N1 mótið byrjar að rúlla,“ er haft eftir Sævari Péturssyni, framkvæmdstjóra KA. „Það er mikið líf og fjör að sjá þessa stráka mæta hérna norður og búa til skemmtilegar minningar sem vonandi lifa vel og lengi hjá þeim. Við erum þakklátir fyrir samstarf okkar við N1 og gaman að segja frá því að með undirritun þessa nýja samnings þá teygir þetta samstarf sig yfir 40 árin við sama styrktaraðila sem hlýtur að vera einsdæmi í heiminum.“
N1 mótið er oft fyrsta skrefið í ferli ungra og efnilegra leikmanna, segir í tilkynningunni, „eins og sagan hefur sýnt og er mikilvægi mótsins því óumdeilt,“ að sögn Einars Eyland, verslunarstjóra N1 á Akureyri. „Við hjá N1 erum ákaflega stolt af N1 mótinu og því góða samstarfi sem við höfum átt með KA í gegnum tíðina enda undirbúningur og umgjörð mótsins til fyrirmyndar hjá félaginu. Við munum því halda áfram að styðja við grasrótarstarf drengja og stúlkna og hlökkum til að halda því áfram!“