KA-menn steinlágu fyrir Selfyssingum
KA-menn fóru illa að ráði sínu í kvöld þegar þeir mættu Selfyssingum á útivelli í Olís deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta. Selfyssingar unnu 10 marka sigur, 34:24.
Heimamenn kafsigldu gestina í raun strax í upphafi; staðan var orðin 6:1 eftir tæplega átta mínútur og munurinn var orðinn níu mörk í hálfleik – 21:12. Lið KA var mun skárra í seinni hálfleik en munurinn var orðinn svo mikill að það breytti engu og í raun var einungis formsatriði að ljúka leiknum.
Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 5, Dagur Gautason 4, Arnór Ísak Haddsson 4, Gauti Gunnarsson 2, Haraldur Bolli Heimisson 2 Ísak Óli Eggertsson 2, Dagur Árni Heimisson 2, Skarphéðinn Ívar Einarsson 2, Allan Norðberg 1.
Markmenn KA vörðu alls 12 skot en Vilius Rasimas var frábær í marki Selfyssingu, varði 18 skot sem er nærri 50% markvarsla.
KA er í níunda sæti með fimm stig eftir sex leiki.
Smelltu hér til að sjá alla tölfræði.