Handbolti, íshokkí, blak og körfubolti
Fjögur af íþróttaliðum bæjarins verða í eldlínunni á heimavelli í dag og tvö á útivelli. Innan bæjarmarkanna eru það bæði karla- og kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí og tvö handboltalið, kvennalið KA/Þórs og karlalið Þórs.
- 13.30 HK - KA í Digranesi í Kópavogi.
Átta liða úrslit bikarkeppni karla í blaki.
- 15.00 KA/Þór - Valur í KA-heimilinu.
Efsta deild Íslandsmóts kvenna í handbolta, Olís deildin. Valsliðið er í efsta sæti deildarinnar með 28 stig eftir 15 leiki en lið KA/Þórs er nú í neðsta sætinu með 5 stig að loknum 14 leikjum.
- 16.00 Þór - HK U í Íþróttahöllinni
Næst efsta deild Íslandsmótsins í handbolta, Grill 66 deildin. Þórsarar eru í 2.-3. sæti deildarinnar með 16 stig en HK-ingarnir ungu í næst neðsta sæti með fimm stig. Þór vann fyrri leik liðanna í deildinni í Kópavogi í haust með eins marks mun, 28:27.
- 16.45 SA Víkingar - Fjölnir í Skautahöllinni
Íslandsmót karla í íshokkí, Hertz-deildin.
- 17.00 Selfoss - Þór
Næst efsta deild Íslandsmótsins í körfubolta. Þórsarar eru í 8. sæti deildarinnar, hafa unnið fimm leiki af 14, en Selfyssingar eru sæti neðar með þrjá sigra í 14 leikjum. Þór vann fyrri leik liðanna í deildinni 93:80 á Akureyri.
- 19.30 SA - Fjölnir í Skautahöllinni
Íslandsmót kvenna í íshokkí, Hertz-deildin.