Góður endasprettur bjargaði KA/Þór
Íslandsmeistarar KA/Þórs tryggðu sér sigur á Haukum, 30:27, með frábærum endaspretti eftir gríðarlega spennu í KA-heimilinu í kvöld, í fyrsta leik liðanna í umspili um sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta.
KA/Þór varð í þriðja sæti deildarinnar en Haukar í því sjötta en vart mátti á milli sjá hvort liðið átti að vera betra; Stelpurnar okkar byrjuðu reyndar mun betur, komust í 5:1, en svo voru Haukarnir allt í einu komnir upp að hlið meistaranna, 6:6, KA/Þór komst yfir á ný en Haukarnir voru komnir með forystu aftur þegar fyrri hálfleiknum lauk, 16:15.
Sama spenna hélt áfram í seinni hálfleik, KA/Þór þó lengst af yfir en þegar nokkrar mínútur voru eftir var staðan 27:26 fyrir Hauka. Meistararnir skiptu þá í efsta gír og gerðu fjögur síðustu mörkin.
Landsliðskonan Rakel Sara Elvarsdóttir, örvhenti hornamaðurinn snjalli, meiddist seint í fyrri hálfleik og lék ekki meira. Hin bráðefnilega Hildur Lilja Jónsdóttir leysti Rakel Söru af, kom inn með látum og gerði alls fimm mörk.
Sigra þarf í tveimur leikjum til að komast í undanúrslit. Liðin mætast aftur á sunnudaginn í Hafnarfirði. KA/Þór fer áfram með sigri þar en komi til þriðja leiksins verður hann næsta þriðjudag í KA-heimilinu.
Mörk KA/Þórs: Unnur Ómarsdóttir 8, Rakel Sara Elvarsdóttir 5, Hildur Lilja Jónsdóttir 5, Rut Jónsdóttir 4 (2 víti), Ásdís Guðmundsdóttir 2, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 2, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Martha Hermannsdóttir 2 (2 víti).
Smellið hér til að sjá alla tölfræði.
Aldís Ásta Heimisdóttir í dauðafæri á línunni í kvöld. Ljósmynd: Þórir Tryggvason.