Glæsilegur sigur KA á FH og spennan í hámarki
KA-menn höfðu sannarlega erindi sem erfiði þegar þeir sóttu FH-inga heim í dag í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Elfar Árni Aðalsteinsson gerði tvö mörk í leiknum og Jóan Símun Edmundsson eitt – sitt fyrsta í deildinni – og KA vann glæsilegan 3:0 sigur.
KA varð að sigra í dag til að eiga möguleika á að verða í hópi sex efstu liða deildarinnar þegar henni verður skipt í tvennt fyrir síðasta hlutann, eftir lokaumferðina á sunnudaginn. KA-menn þurfa einnig að sigra Fylki í Reykjavík á sunnudaginn og treysta á að KR tapi gegn ÍBV í Eyjum eða að FH tapi fyrir Breiðabliki. Markamunur mun þá ráða því hvar liðin lenda, en eitt þeirra mun sitja eftir með sárt ennið.
- 0:1 – Ásgeir Sigurgeirsson náði boltanum skammt utan vítateigs FH-inga, sneri af sér varnarmann og renndi boltanum til hægri inn á vítateig. Færeyingurinn Jóan Símun Edmundsson lagði boltann fyrir sig og skoraði af miklu öryggi undir markvörðurinn sem kom út á moti. Þetta var á 31. mín.
- 0:2 – Komið var í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar KA fékk aukaspyrnu hægra megin á vellinum, töluvert utan vítateigs. Harley Willard spyrnti inn á teig, FH-ingur skallaði frá, beint á Jóan Símun rétt utan teigs. Hann renndi strax á Willard sem sendi boltann að þessu sinni yfir á markteigshornið fjær þangað sem Elfar Árni Aðalsteinsson hafði laumaði sér, var einn og óvaldaður og skoraði laglega.
- 0:3 – Það var svo á 56. mínútu að Elfar Árni gerði síðara mark sitt og gulltryggði dýrmætan sigur KA. Willard sendi boltann á Hallgrím Mar fyrir utan vítateig og Hallgrímur renndi til vinstri inn á teig á Elfar Árna, sem lagði boltann fyrir sig og skrúfaði hann svo efst í fjærhorn. Stórglæsilegt mark!
Hvað þarf til að KA verði í efri hlutanum?
FH er í fimmta sæti Bestu deildarinnar með 31 stig, KR hefur einnig 31 stig en er með lakari markatölu og KA er í sjöunda sæti með 28 stig.
Þetta eru leikirnir sem skipta KA-menn máli á sunnudaginn:
- Fylkir - KA
KA er með átta mörk í mínus. - Breiðablik - FH
FH er með fimm mörk í mínus. - ÍBV - KR
KR er með sjö mörk í mínus.
Gríðarlega spennandi verður að fylgjast með lokaumferðinni því markamunur gæti ráðið úrslitum.
Tökum dæmi:
- KA vinnur Fylki með tveggja marka mun - KA yrði með 31 stig og sex mörk í mínus
- Breiðablik vinnur FH með eins marks mun - FH yrði með 31 stig og sex mörk í mínus
- ÍBV vinnur KR með eins marks mun - KR yrði með 31 stig og átta mörk í mínus
Skv. reglugerð KSÍ ræðst staða liða í deildinni af þessum atriðum, í þessari röð:
- Fjöldi stiga
- Markamismunur (skoruð mörk að frádregnum fengnum mörkum)
- Fjöldi skoraðra marka
- Fjöldi stiga í innbyrðis leikjum
- Markamismunur í innbyrðis leikjum
- Fjöldi skoraðra marka í innbyrðis leikjum
- Fjöldi skoraðra marka á útivelli í innbyrðis leikjum
_ _
Smellið hér til að sjá leikskýrsluna úr viðureign FH og KA
Smellið hér til að sjá stöðuna í deildinni