Íþróttir
Fyrsti leikur Ingva er Þór mætir toppliðinu
04.03.2021 kl. 15:49
Bjarki Ármann Oddsson, þjálfari Þórs, Ingvi Þór Guðmundsson og Hjálmar Pálsson, formaður körfuknattleiksdeildar.
Körfuboltamaðurinn Ingvi Þór Guðmundsson, sem gekk til liðs við Þór á dögunum, spilar fyrsta leikinn með liðinu í kvöld þegar Þórsarar sækja topplið Keflavíkur heim í Domino's deildinni. Keflvíkingar eru með 18 og hafa aðeins tapað leikjum í vetur en Þórsarar eru í 10. til 11. sæti ásamt Hetti með sex stig. Aðeins Haukar eru neðar, með tveimur stigum minna.
Hægt er að horfa á leikinn í beinni útsendingu Keflvíkinga en ekki virðist á hreinu hvað það kostar; á miðasölusíðunni segir 2000 krónur en annars staðar 1200. Smellið hér til að kaupa miða - smellið hér til þess að komast inn á KEF TV.