Fara í efni
Íþróttir

Fjölmennt á ÍV mótinu í listhlaupi

Ljósmynd: Björn Elvar Björnsson.

ÍV mótið í listhlaupi á skautum, kennt við Íslensk verðbréf, fór fram í Skautahöllinni á Akureyri um síðustu helgi. Þar sýndi yngsta kynslóðin listir sínar en til leiks voru skráðir 76 keppendur úr fjórum félögum, Skautafélagi Akureyrar, Skautafélagi Reykjavíkur, Fjölni og Öspinni. Björn Elvar Björnsson var með myndavélina á lofti og sendi Akureyri.net afraksturinn. Smellið á hverja mynd til að stækka hana.