Fara í efni
Íþróttir

Fjölmennt 1. maí hlaup UFA – MYNDIR

Sprett úr spori í 1. maí hlaupi UFA í gær. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Um 350 tóku þátt í árlegu 1. maí hlaupi Ungmennafélags Akureyrar sem haldið var í hádeginu í gær. Tæplega 100 leikskólabörn hlupu fyrst einn hring á hlaupabrautinni á Þórssvæðinu, 400 metra, eftir góða upphitun Unnars Vilhjálmssonar frjálsíþróttaþjálfara. Í grunnskólahlaupi tóku svo þátt 200 krakkar og 5 km hlupu loks 30 krakkar og 20 fullorðnir. Myndirnar eru af leikskóla- og grunnskólabörnunum. 

Á heimasíðu UFA má sjá frekari upplýsingar og öll úrslit. Smellið hér til að fara þangað.