Enn tapar Þór – Arturo Fernandez til Sindra
Karlalið Þórs í körfubolta tapaði fyrir Álftanesi á útivelli í gærkvöldi, 117:55, í næst efstu deild Íslandsmótsins. Liðinu hefur gengið afleitlega í vetur og ljóst að Þórsarar leika í þriðju efstu deild á næstu leiktíð.
- Skorið eftir leikhlutum: 23:14 – 28:8 (51:22) – 29:19 – 37:14 – 117:55
Róðurinn hefur verið afar erfiður á tímabilinu og ekki bætti úr skák að Toni Cutuk er meiddur og lék í gær, og þá voru bæði fyrirliðinn, Kolbeinn Fannar Gíslason, og Hlynur Freyr Einarsson fjarri góðu gamni. Einnig er vert að geta þess að Spánverjinn Arturo Fernandez, sem hefur skorað lang mest í vetur, horfinn á braut; hann skipti yfir til Sindra á Hornafirði á dögunum.
Þórsarar leika í þriðju efstu deild næsta vetur og þá gefst vonandi kærkomið tækifæri til að byggja upp lið frá grunni með þeim ungu og efnilegu leikmönnum sem fyrir hendi eru.
Smári Jónsson gerði 19 stig í Forsetahöllinni á Álftanesi í gær, tók átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Baldur Örn Jóhannesson skoraði 16 stig, tók jafn mörg 16 fráköst og átti fimm stoðsendingar.
Smellið hér til að sjá nánari tölfræði