Fara í efni
Íþróttir

Deiliskipulag fyrir tjaldsvæðisreit kynnt

Skýringaruppdráttur af drögum að nýju deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðisreitinn.

Akureyrarbær hefur auglýst drög að deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðisreitinn við Þórunnarstræti. Drög að skipulagi hafa verið í vinnslu, en nú kemur inn viðbót, skipulögð byggð þar sem áður var gert ráð fyrir nýrri heilsugæslustöð, í norðvesturhorni reitsins á við gatnamót Byggðavegar og Þingvallastrætis. Nokkuð er síðan ljóst varð að hún mun ekki rísa á þessu svæði.


Hluti af umræddu svæði, séð í norður frá göngustíg sem nú liggur milli Byggðavegar og Þórunnarstrætis. Húsmæðraskólinn gamli til hægri á myndinni og Berjaya-hótel fjær. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Gert er ráð fyrir fjölbreyttum íbúðum fyrir fjölbreyttan hóp fólks, að því er kemur fram í greinargerð með tillögunni. Þar segir meðal annars: „Skilgreind er lóð fyrir íbúðir fyrir 60 ára og eldri og annar reitur fyrir hagkvæmar íbúðir þ.e.a.s. ódýrari íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur.“ Einnig skal sérstaklega gera ráð fyrir rúmgóðum íbúðum með sérinnöngum á jarðhæð, þar sem það á við, „í góðum tengslum við forgarða, og/eða sérnotareiti og sameiginleg dvalarsvæði, með fjölskyldur í huga.“

Helstu áhersluatriði í nýju skipulagi:

  • blönduð byggð
  • íbúðir fyrir 60 ára og eldri
  • þétt og lágreist byggð með bílakjallara
  • fjölbreytt rými

Til þess að stuðla að aukinni fjölbreytni á svæðinu skal engin ein íbúðargerð fara yfir 50% hlutfall innan hverrar byggingar. Íbúðir undir 50 fermetrum í hverri byggingu skulu ekki vera fleiri en sem nemur 10% af fjölda íbúða. Þá er einnig gert ráð fyrir starfsemi á svæðinu, verslun, skrifstofum og/eða þjónustu og eingöngu heimil starfsemi sem fellur vel að íbúðabyggð og er án truflana fyrir nágrenni á hvíldartíma heimila.


Skýringarmynd með breyttu skipulagi. Rauði kassinn sýnir svæðið þar sem áður var fyrirhugað að ný heilsugæslustöð myndi rísa. Eins og sjá má á myndinni er gert ráð fyrir að innakstur úr Þórunnarstræti á bifreiðastæði við Berjaya-hótelið og nýjar byggingar færist vestar en nú er og verði á móts við Þingvallastræti 24.

Byggingar á reitnum geta verið allt að fjórum og hálfri hæð og eiga að taka mið af núverandi byggingum innan reitsins og umhverfis. Á reitnum stendur gamli Húsmæðraskólinn, Þórunnarstræti 99, en húsið að Þórunnarstræti 97 mun víkja samkvæmt tillögunni.

Um hæð og útlit bygginga segir meðal annars: „Mismunandi hæðir bygginga og uppbrot tryggja að byggðin leggst vel að hæðarmismuninum á reitnum og aðlagast núverandi byggð í kring. Hámarks hæð bygginga takmarkast einnig við það markmið að mynda bæjarrými sem styrkir tengsl milli notkunar bygginga og mannlífs í almennings- og göturýmum, torgum og görðum. Markmið bygginga með uppröðun bygginga er að mynda umgjörð um fjölbreytt græn íverurými í formi; skjólgóðra sameiginlegra garða, stíga, leiksvæða og torgrýmis. “

Fram kemur í auglýsingu bæjarins að áhersla sé lögð á að skapa nútímalegt og sjálfbært hverfi sem fellur vel að núverandi byggð og umhverfi.


Skýringarmynd úr greinargerð með tillögunni. Myndin er tekin úr þrívíddarmódeli. Til hægri er gaflinn á Þórunnarstræti 99 (Húsmæðraskólinn). Á myndinni má sjá hæðir húsa. Skjáskot úr greinargerð.

Nánar má lesa um skipulagsferlið á vef Akureyrarbæjar, en það hefur staðið yfir í nokkur ár og verið unnið í samstarfi við íbúa, hagsmunaaðila og sérfræðinga, að því er fram kemur í frétt á vef bæjarins. Fjölmargar ábendingar hafa borist á kynningarfundum og í gegnum samráðsvettvanginn „Okkar Akureyri“, sem hafa að einhverju leyti mótað tillöguna.

Frestur til að koma á framfæri ábendingum við skipulagstillöguna er til 27. febrúar. Ábendingar ber að senda inn í gegnum skipulagsgátt.