Bikarmeistarar sækja KA heim – KA/Þór tapaði
Stelpurnar í KA/Þór lutu í lægri haldi fyrir toppliði ÍBV þegar liðin mættust í Vestmannaeyjum í gær á Íslandsmótinu í handbolta. Eyjastúlkur voru mun sterkari, höfðu níu marka forystu í hálfleik og sigurinn var afar öruggur. Stelpurnar okkar náðu aðeins að rétta úr kútnum í seinni hálfleik en lokatölur urðu 28:23.
Mörk KA/Þórs: Nathalia Soares Baliana 8, Ida Hoberg 4, Rut Jónsdóttir 3, Lydía Gunnþórsdóttir 3 (2 víti), Sunna Katrín Hreinsdóttir 2, Agnes Vala Tryggvadóttir 1, Anna Þyrí Halldórsdóttir 1, Kristín A. Jóhannsdóttir 1.
Varin skot: Matea Lonac 13.
ÍBV er með 34 stig í efsta sæti Olís deildarinnar og hefur tveggja stiga forskot á Val en KA/Þór er í fimmta sæti með 12 stig eins og Haukar. Tvær umferðir eru eftir af deildinni áður en úrslitakeppnin hefst. KA/Þór mætir annað hvort Stjörnunni eða Fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Leikirnir sem KA/Þór á eftir:
- Laugardag 25. mars kl. 15.00 KA/Þór - Fram
- Laugardag 1. apríl kl. 16.00 Valur - KA/Þór
Næst síðasti heimaleikur KA
Karlalið KA í handbolta fær nýbakaða bikarmeistara Aftureldingar í heimsókn í kvöld í 19. umferð Olís deildarinnar. Leikurinn hefst kl. 19.00. Afturelding vann fyrri leik liðanna í deildinni í Mosfellsbæ, 34:29, og liðin mættust síðan í KA-heimilinu í átta liða úrslitum bikarkeppninnar þar sem gestirnir höfðu betur, 35:32, eftir mikla spennu og framlengdan leik.
KA er sem stendur í 10. sæti með 11 stig og hverfandi líkur á að liðið komist í átta liða úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn. KA þyrfti þá að vinna alla fjóra leikina og treysta á að Haukar, sem eru í áttunda sæti með 17 stig, misstigu sig illa. Haukar unnu báða leikina við KA í vetur og eiga eftir að fá Hörð frá Ísafirði í heimsókn. Lið Harðar er lang neðst í deildinni.
Eftir kvöldið á KA þrjá leiki eftir í deildinni:
- Föstudag 31. mars kl. 18.00 FH - KA
- Miðvikudag 5. apríl kl. 19.30 KA - Fram
- Mánudag 10. apríl kl. 16.00 Grótta - KA