Aron Birkir varði þrjú víti – Þór í 16-liða úrslit
Þórsarar eru komnir í 16-liða úrslit bikarkeppninnar í knattspyrnu, Mjólkurbikarsins, eftir sigur á Kára frá Akranesi í Akraneshöllinni í dag. Þrátt fyrir linnulitla sókn og 20 hornspyrnur náðu Þórsarar ekki að skora í hefðbundnum leiktíma, en þeir unnu 5:3 eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni.
Eftir 90 markalausar mínútur tók það Þórsara ekki nema tæpar tvær mínútur að skora í framlengingunni. Það var Kristófer Kristjánsson sem braut ísinn. Lið Kára fékk svo víti í seinni hálfleik framlengingar og jafnaði. Aron Birkir Stefánsson í Þórsmarkinu varði reyndar frá Fylki Jóhannssyni en Fylkir náði frákastinu og skoraði. Aron gerði sér svo lítið fyrir og varð tvö skot í vítaspyrnukeppninni.
Vítaspyrnukeppnin:
- 1:2 Alexander Már Þorláksson - skorar
1:2 Sverrir Mar Smárason - Aron Birkir ver
- 1:3 Nikola Kristinn Stojanovic - skorar
2:3 Fylkir Jóhannsson - skorar
- 2:4 Bjarki Þór Viðarsson - skorar
3:4 Kolbeinn Tumi Sveinsson - skorar
- 3:5 Ingimar Arnar Kristjánsson - skorar
3:5 Hektor Bergmann Garðarsson - Aron Birkir ver
Smellið hér til að sjá leikskýrsluna