Fara í efni
Íþróttir

Alúðarfesta skapar frjóasta jarðveginn

Nemendur mættu í bleiku í skólann í dag, eins og aðrir framhaldsskólanemar, til að sýna samstöðu gegn ofbeldi. Mynd: ma.is.

Skólameistarar beggja framhaldsskólanna á Akureyri hafa sent foreldrum eða forsjáraðilum nemenda bréf vegna vopnaburðar og ofbeldis meðal barna og ungmenna í íslensku samfélagi.

Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, hvetur í bréfinu skólasamfélagið allt til að gera allt sem mögulegt er til að koma í veg fyrir ofbeldi og ofbeldistengd samskipti, að rætt verði við og með börnum og ungmennum, bæði í skólanum og á heimilunum, um að efla hið góða í samskiptum, leita skilnings frekar en að dæma og halda því fram sem farsælt er, rétt og gott. 

Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari Verkmenntaskólans, bendir einnig á verndandi þætti gegn áhættuhegðun barna og hvetur foreldra til að ræða við börn sín um „hvernig við sköpum í sameiningu öruggara samfélag, þ. á m. um að það sé ólöglegt að ganga um með vopn, hverjar afleiðingar ofbeldis geta verið og kynna fyrir þeim hvert þau geta leitað að stuðningi. “

Bréf Karls Frímannssonar

Akureyri 4. september 2024
Kæru foreldrar/forsjáraðilar

Vopnaburður og ofbeldi meðal barna og ungmenna hefur farið vaxandi samkvæmt gögnum lögreglunnar. Alvarleg atvik að undanförnu hafa vakið ugg og ótta meðal landsmanna og mikilvægt að bregðast við þeirri óheillaþróun.

Mikilvægt er að við öll sem að skólasamfélaginu stöndum gerum allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir ofbeldi og ofbeldistengd samskipti. Menntaskólinn á Akureyri hvetur til þess að bæði í skólanum sem og á heimilunum verði rætt við og með börnum og ungmennum um að efla hið góða í samskiptum, leita skilnings frekar en að dæma og halda því fram sem er farsælt, rétt og gott.

Ákveðnir þættir eru verndandi gegn áhættuhegðun barna svo sem samvera foreldra og barna, að útivistartími sé virtur, fylgst sé með netnotkun þeirra, að börnum sé sýnd umhyggja, þeim séu sett skýr mörk og að forráðafólk þekki vini barna sinna og foreldra þeirra. Jafnframt felst mikið forvarnargildi í þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Einnig hefur forvarnagildi að nemendur finni að þeir tilheyri því skólasamfélagi sem þeir starfa í, finnist þeir velkomnir þangað og að við sem störfum í skólanum sýnum þeim tiltrú og hvatningu. Uppbyggileg samskipti og alúðarfesta skapar börnum okkar frjóasta jarðveginn að vaxa úr.

Menntaskólinn á Akureyri áréttar að vopnaburður á almannafæri er lögum samkvæmt bannaður. Ef nemandi verður uppvís að því að bera vopn verður málið undantekningalaust tilkynnt til lögreglu og eftir atvikum barnaverndar og forráðafólks. Ofbeldismál sem upp kunna að koma innan skólans eða á viðburðum á hans vegum verða unnin eftir viðbragðsáætlun sem finna má á heimasíðu skólans sem við hvetjum forráðafólk og nemendur til að kynna sér. Þá er vakin athygli á því að nemendur og foreldrar geta leitað stuðnings og ráðgjafar innan skólans svo sem hjá stoðteymi, umsjónarkennurum og stjórnendum. Þá bendum við á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall á www.1717.is og á www.112.is.

Minnt er á að á öllum hvílir tilkynningarskylda til barnaverndar ef ástæða er til að ætla að barn verði fyrir ofbeldi, vanrækslu eða annarri vanvirðandi háttsemi eða stofni heilsu sinni og annarra í hættu.

Í sameiningu getum við stuðlað að jákvæðum skólabrag, öruggara samfélagi og aukinni farsæld með því að vera góðar fyrirmyndir, hafa trú á börnum og ungmennum og hvetja þau til góðra verka.

Virðingarfyllst,
Karl Frímannsson
skólameistari

Bréf Sigríðar Huldar Jónsdóttur

3. september 2024
Kæru nemendur í VMA, foreldrar/forsjáraðilar 

 Áhyggjur af auknum vopnaburði og ofbeldi meðal barna og ungmenna hafa farið vaxandi og hafa alvarleg atvik undanfarið ýtt undir þær áhyggjur. Við þessu er mikilvægt að bregðast.  Vopnaburður á almannafæri er lögum samkvæmt bannaður (Vopnalög nr. 16/1998). Ef nemandi verður uppvís að því að bera vopn verður málið undantekningalaust tilkynnt til lögreglu og eftir atvikum til barnaverndarþjónustu og foreldra ef um barn er að ræða. Ofbeldismál sem upp koma innan skólans eða á viðburðum í hans nafni verða sett í viðeigandi ferli og unnin eftir viðbragðsáætlun sem finna má á heimasíðu skólans, ásamt skólareglum, sem við hvetjum foreldra og nemendur til að kynna sér. Það skal tekið fram að endurskoðun á viðbragðsáætlun skólans er í vinnslu.  

Ákveðnir þættir eru verndandi gegn áhættuhegðun barna svo sem samvera foreldra og barna, fylgst sé með netnotkun þeirra, að börnum sé sýnd umhyggja og þeim séu sett skýr mörk og að foreldrar þekki vini barna sinna og foreldra þeirra. Jafnframt felst  mikið forvarnargildi í þátttöku barna í skipulögðu félagslífi innan skólans og íþrótta- og tómstundastarfi og mikilvægt er að foreldrar séu virkir þátttakendur í foreldrastarfi.  Mikilvægt er að foreldrar taki þátt í að bregðast við þessari þróun og geri allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir ofbeldi og vopnaburð. Ég hvet foreldra til að ræða við börnin sín um hvernig við sköpum í sameiningu öruggara samfélag, þ. á m. um að það sé ólöglegt að ganga um með vopn, hverjar afleiðingar ofbeldis geta verið og kynna fyrir þeim hvert þau geta leitað að stuðningi.  

Vakin er athygli á því að nemendur og foreldrar geta leitað stuðnings og ráðgjafar innan skólans svo sem hjá nemendaþjónustu, umsjónarkennara, stjórnendum, tengiliði á grundvelli farsældarlaga eða náms- og starfsráðgjafa. Þá bendum við á Hjálparsíma Rauða Krossins 1717 og netspjall á www.1717.is og á  www.112.is. Á heimasíðu 112 er einnig hægt að nálgast fræðsluefni um ofbeldi og ofbeldisvarnir.

Munum að á okkur öllum hvílir tilkynningaskylda til Barnaverndar ef ástæða er til að ætla að barn verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.  

Í sameiningu getum við stuðlað að öruggara samfélagi og aukinni farsæld. Við hvetjum ykkur til að hafa samband við skólann ef einhverjar spurningar vakna. 

Virðingarfyllst, 
Sigríður Huld Jónsdóttir,
skólameistari VMA