Akureyrsku 100-kallarnir fengu málverk frá KSÍ
Akureyringarnir Aron Einar Gunnarsson og Birkir Bjarnason fengu í dag heiðursviðurkenningu frá Knattspyrnusambandi Íslands í tilefni þess að þeir hafa náð 100 A-landsleikjum.
Samkvæmt reglugerð KSÍ um landsliðs- og heiðursmerki skal veita þeim leikmönnum sem ná þessum áfanga heiðursviðurkenningu, sérhannað listaverk.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, afhenti leikmönnunum málverk í dag á hóteli íslenska liðsins, sem býr sig nú undir tvo heimaleiki í undankeppni næsta Evrópumóts, gegn Slóvakíu að kvöldi þjóðhátíðardagsins, næsta laugardags, og gegn Portúgal á þriðjudagskvöldið kemur.
Á vef KSÍ segir í dag um þá félaga:
Aron Einar Gunnarsson lék fyrsta A-landsleik sinn árið 2008, vináttuleik gegn Belarús og 100-leikja áfanganum náði hann í vináttuleik gegn Sádi-Arabíu í nóvember í fyrra. Aron Einar hefur nú leikið 101 leik fyrir A landsliðið og skorað 5 mörk, þar af eftirminnilega þrennu í 101. leiknum.
Landsleikir - Aron Einar Gunnarsson
Birkir Bjarnason lék fyrst fyrir A landsliðið í vináttuleik við Andorra árið 2010 og lék sinn 100. leik þegar liðið mætti Norður-Makedóníu í september 2021 í undankeppni HM. Birkir hefur nú leikið 113 A-landsleiki fyrir Ísland og skorað 15 mörk, og er hann leikjahæsti leikmaður A landsliðs karla frá upphafi.
Við þetta má bæta að báðir hafa þeir leikið fyrir öll yngri landslið Íslands, og ef öll landslið eru tekin saman hefur Aron Einar leikið 135 landsleiki og landsleikir Birkis eru orðnir 159 talsins.