Aðstoða íþróttafólk við að fá styrki í háskólum
ANSAathletics, íslenskt fyrirtæki sem hjálpar ungu íþróttafólki að hreppa styrki í bandarískum háskólum í gegnum íþróttina, heldur í dag opinn kynningarfund á Zoom til að kynna ferlið og útskýra hvernig áhugasamir geta nýtt sér þessa möguleika.
Kynningarfundurinn hefst kl. 13:00. Skráning á fundinn fer fram HÉR
„Frá stofnun fyrir fjórum árum síðan hefur ANSAathletics stutt við íþróttafólk í körfu, sundi, frjálsum íþróttum og golfi. Nú býðst íslenskum knattspyrnuiðkendum einnig að nýta sér þjónustu ANSAathletics,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Íslenskt knattspyrnufólk hefur jafnan vakið athygli bandarískra háskóla fyrir vaska framgöngu. Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir unga iðkendur að leggja kapp á íþrótt sína við bestu aðstæður samhliða háskólanámi.“
Frekari upplýsingar um ANSAathletics má finna á heimasíðu fyrirtækisins: www.ansaathletics.com.
ANSAathletics er einnig á Facebook Facebook.com/ansaathletics og Instagram instagram.com/ansaathletics.