Fara í efni
Fréttir

Zonta – afmælishóf og listaverkauppboð í dag

Nokkur þeirra verka sem eru á listaverkauppboði Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu.

Zontaklúbburinn Þórunn hyrna er 40 ára um þessar mundir og af því tilefni verður afmælishóf og listaverkauppboð í Deiglunni í Listagilinu í dag, laugardaginn 5. október kl. 15:00. Zontakonur vonast til þess að sem flestir komi og fagni með þeim.

Í hófinu heiðrar klúbburinn Helenu Eyjólfsdóttur, einn stofnfélaga Þórunnar hyrnu, stiklað verður á stóru í sögu klúbbsins og haldið verður listaverkauppboðið LIST STYÐUR LIST, undir stjórn Villa vandræðaskálds. Boðið verður upp á tónlistaratriði og léttar veitingar.

Deiglan verður opnuð kl 14.00 með forsýningu á listaverkunum, en dagskrá hefst kl. 15.00.

Hugmyndin að uppboðinu var listaverkagjöf til klúbbsins, að því er segir í tilkynningu. „Allur ágóði af uppboðinu rennur í sjóð til að styðja konur til listnáms og/eða listsköpunar. Verkefnið og styrktarsjóðurinn fékk nafnið LIST STYÐUR LIST.“

Listaverkin eru til sýnis á facebook og instagram, þar sem áhugasamir geta boðið í verkin.

Hér er Facebook síðan þar sem listaverkin eru til sýnis er: Listaverkauppboð Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu

Nú í október mánuði verður auglýst eftir umsóknum um styrki og fer úthlutun fram í tengslum við 16 daga átak Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi sem stendur frá 25. nóvember til 10. desember n.k.
_ _ _

ZONTA

Í tilkynningu frá Þórunni hyrnu segir:

Zontahreyfingin vinnur að því að bæta stöðu og lífsgæði kvenna hvar sem er í heiminum, bæði á eigin vegum og í samstarfi við stofnanir Sameinuðu þjóðanna og frjáls félagasamtök. Zonta leggur sérstaka áherslu á valdeflingu ungra stúlkna og kvenna m.a. með því að styðja þær til náms og veita þeim þannig brautargengi til aukinna tækifæra og áhrifa í samfélaginu.

Zontaklúbbar vinna að þessum markmiðum með því að safna fjármunum sem renna bæði til verkefna innanlands og utan. Dæmi um innlend styrktarverkefni Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu eru: Aflið/Samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, Bjarmahlíð/miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Kvennaathvarfið, Rauði krossinn og Velferðarsjóður Eyjafjarðar. Ennfremur hefur klúbburinn styrkt einstæðar mæður til sumardvalar með börnum sínum.