Fréttir
Vorvindar glaðir, glettnir og hraðir
13.02.2023 kl. 15:45
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Vor er í lofti í Eyjafirði í dag, 10 stiga hiti og nokkur vindur úr suðri. Ekki er langt síðan töluverður snjór var á götum en nú er jörð orðin marauð og starfsmenn Akureyrarbæjar nota tækifærið og sópa götur. Mikill sandur er víða á götum og verður góða veðrið notað til þess að hreinsa mestu umferðargötur bæjarins.