Vodafone opnar nýja upplifunarverslun
Vodafone hefur opnað nýja verslun á Akureyri þar sem stafræn upplifun og hringrás fjarskiptatækja er höfð að leiðarljósi, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Verslunin er á Glerártorgi, aðeins steinsnar frá gömlu Vodafone versluninni. Fyrir ofan þá nýju verða skrifstofur fyrir söluver, sjónvarpskjarna og fyrirtækjasvið Vodafone á Akureyri.
„Vodafone leggur áherslu á að einfalda þjónustu með stafrænum lausnum en við hönnun á verslun var lögð rík áhersla á stafræna upplifun og sjálfbærni. Verslunin er búin 6 skjám meðal annars stærsta hringskjá landsins í loftinu,“ segir í tilkynningunni.
„Upplifun viðskiptavina skiptir okkur alltaf máli. Öll hönnun á framsetningu á búnaði tengdum fjarskiptum, heimilinu og afþreyingu var hannað með endurgjöf viðskiptavina að leiðarljósi. Skjávirknin einfaldar okkur miðlun til viðskiptavina og lágmarkar sóun sem fer í það að prenta út merkingar. Við erum í skýjunum með viðtökurnar á nýju versluninni og tökum vel á móti fólki í dag með ýmsum óvæntum uppákomum og gómsætum veitingum,“ segir Bjarni Freyr Guðmundsson – Rekstrastjóri Vodafone á norðurlandi.
„Nýja verslunin á Akureyri er fyrirmynd af framtíðarhönnun annarra upplifunarverslana Vodafone. Til stendur að breyta öllum verslunum Vodafone í upplifunar verslanir,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.