Vill jafna verð á flugvélaeldsneyti
Ingibjörg Isaksen, fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis og þingflokksformaður Framsóknar, hefur lagt fram beiðni um skýrslu frá innviðaráðherra um jöfnun kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis og afgreiðslu þess á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum í samanburði við Keflavíkurflugvöll.
Verð flugvélaeldsneytis er mun ódýrara í Keflavík en á hinum tveimur flugvöllunum. Ingibjörg fer fram á að í skýrslunni verði kveðið á um hugsanlegar aðgerðir til jafna verðið.
Umfjöllunarefni skýrslunnar verði eftirfarandi:
- Aðstöðumunur flugvalla með tilliti til kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis og afgreiðslu þess.
- Úttekt á hugsanlegum aðgerðum til jöfnunar á framangreindum kostnaði og greining á kostnaði við þær aðgerðir.
- Mat á því hver hagkvæmasta aðgerðin eða hagkvæmustu aðgerðirnar eru til að ná fyrrgreindu markmiði.
- Fýsileiki þess tryggja örugga birgðastöð flugvélaeldsneytis á Akureyri og Egilsstöðum.
Allt eldsneyti geymt í Helguvík
Í greinargerð með þingskjalinu kemur fram að nær allar flugvélar í atvinnuflugi noti flugsteinolíu sem eldsneyti, svonefnt Jet A-1. „Öll flugsteinolía, sem notuð er á flugvélar hér á landi, er flutt inn til landsins og geymd í Helguvík, og miklar kröfur eru gerðar varðandi meðhöndlun hennar. Vegna þessa er afgreiðsla flugsteinolíu dýrari en afgreiðsla annarra tegunda eldsneytis. Á Keflavíkurflugvelli, lang stærsta flugvelli landsins, er samkeppni til staðar milli félaga um afgreiðslu flugsteinolíu. Þar er kostnaður af flugsteinolíu og afgreiðslu þess lægstur á landinu. Hins vegar er aðeins einn aðili sem veitir slíka þjónustu á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli. Því er einingarverð á flugsteinolíu, þ.e. kostnaður fyrir hvern lítra, töluvert hærra á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli, sbr. greiningu sérfræðinga.“
Samkvæmt þessu sé skýr aðstöðumunur á milli flugvalla, sem beri að lagfæra á grundvelli byggðasjónarmiða, umhverfissjónarmiða og öryggissjónarmiða. Í þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024 komi fram að jafna eigi aðstöðumun millilandaflugvalla.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tekur fyrstu skóflustungu að nýrri flugstöðvarbyggingu á Akureyrarflugvell á síðasta ári. Ingibjörg Isaksen hefur óskað eftir skýrslu frá ráðherra um jöfnun kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis og afgreiðslu þess á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum í samanburði við Keflavíkurflugvöll. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Ingibjörg bendir á að í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs frá 2021 komi eftirfarandi markmið fram:
- „Áætlanir í samgöngumálum, húsnæðismálum og skipulagsmálum verða samþættar og lagðar fram samhliða og þannig tryggt að samgöngur séu í þágu byggðar og loftslags til að uppfylla ferðaþörf og skapa sjálfbær hverfi og sjálfbærar byggðir.“
- „Unnið verður að því í samstarfi ríkis og sveitarfélaga að efla almenningssamgöngur á landsbyggðinni.“
Umhverfismál og öryggismál
Ingibjörg segir ennfremur: „Einnig er vert að benda á að mikill verðmunur leiðir til þess að flugrekendur eru líklegri til að kaupa meiri flugsteinolíu en þörf er á og þyngja vélar í kjölfarið. Þyngri vélar losa meira, sem fer gegn markmiðum Íslands í umhverfismálum. Einnig er það öryggismál að eldsneytisbirgðir séu nægar og aðgengilegar á öllum flugvöllum.
Sérfræðingar hafa bent á nauðsyn þess að jafna kostnað vegna flugvélaeldsneytis og mögulegar leiðir til þess. Meðal þeirra leiða er niðurgreiðsla kostnaðar við flutning og afgreiðslu flugsteinolíu af hálfu ríkisins. Hins vegar er það álitamál hvernig framkvæma eigi slíka niðurgreiðslu, hlutfall hennar og fyrir hvaða flugferðir yrði niðurgreitt.“
Ingibjörg nefnir að bent hafi verið á mögulega fjárfestingu í tanki í Krossanesi á Akureyri „og/eða dreifikerfi ásamt fleiri innviðum og afgreiðslubúnaði. Ásamt þessu gæti það verið fýsilegt að stofna óhagnaðardrifið afgreiðslufyrirtæki, sem myndi afgreiða lendingar og brottfarir á umræddum flugvöllum.“