Fréttir
Verktakar sýndu Jóni Hansen virðingu
13.01.2023 kl. 18:30
Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson
Verktakar á Akureyri sýndu Jóni heitnum Hansen, verkstjóra gatnamála hjá Akureyrarbæ, virðingu með táknrænum hætti í dag. Útför Jóns, sem lést um aldur fram á jóladag, var frá Akureyrarkirkju.
Jón var jarðsettur í Lögmannshlíðarkirkjugarði. Þegar líkfylgdin ók þangað höfðu verktakar lagt fjölmörgum vinnutækjum – aðallega snjómoksturstækjum – með blikkandi ljósum efst í Þingvallastrætinu og starfsmenn stóðu við tækin. Neðst við Hlíðarfjallsveg voru svo nokkrar vinnuvélar Akureyrarbæjar, auk bifreiðarinnar sem Jón ók jafnan í vinnunni.
Fallega gert hjá verktökum bæjarins og vinnufélögum Jóns heitins hjá Akureyrarbæ.