Fara í efni
Fréttir

Vélfag: Trausti ráðinn framkvæmdastjóri

Trausti Árnason, til vinstri, og Bjarmi Sigurgarðarsson.

Trausti Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vélfags. Hann lætur af störfum hjá Controlant sem forstöðumaður vörusviðs og hefur störf hjá Vélfagi 1. nóvember næstkomandi.

Trausti tekur við framkvæmdastjórastöðunni af Bjarma Sigurgarðarssyni, stofnanda Vélfags, sem tekur nú sæti í stjórn fyrirtækisins.

,,Vélfag er spennandi fyrirtæki með mikla möguleika sem byggir á sterkum grunni og tækni sem hefur sannað sig um allan heim,“ segir Trausti í tilkynningu frá fyrirtækinu. „Bjarmi og Vélfagsteymið hafa mótað metnaðarfulla framtíðarsýn af miklu innsæi fyrir fiskvinnslu framtíðarinnar, þar sem UNO vélin mun leika stórt hlutverk. Ég er fullur tilhlökkunar og bjartsýni að takast á við allar þær áskoranir og þau tækifæri sem því fylgir með samhentum hópi starfsfólks, í nánu samstarfi með viðskiptavinum,“ segir Trausti.

Í tilkynningu frá Vélfagi segir einnig: 

„Trausti kemur frá Controlant þar sem hann hefur leitt uppbyggingu vörusviðs félagsins í gegnum mikinn vöxt sl. 3 ár en Controlant er leiðandi fyrirtæki í lausnum fyrir rauntímavöktun lyfjasendinga. Fram að því hafði Trausti starfað í tækni- og þjónustumálum fyrir sjávarútveginn og matvælaiðnaðinn frá árinu 1996, þegar hann gerði lokaverkefni sitt í kerfisfræði frá TVÍ (nú Háskólinn í Reykjavík) hjá Marel. Næstu 4 árin starfaði hann við hugbúnaðargerð fyrir íslenska sjávarútveginn þangað til hann kom aftur til Marel árið 2000 og starfaði þar í ýmsum störfum á vaxtarárum félagsins til ársins 2020 fyrst í hugbúnaðargerð, ráðgjöf og þjónustu en leiddi síðan uppbyggingu- og samþættingu þjónustunets Marel frá 2013 til 2020.

Frá Marel fór Trausti til Skagans 3X og leiddi tæknisvið og aðfangastýringu félagsins frá 2020-2021, áður en hann fór til Controlant.“

Alfreð Tulinius er stjórnarformaður Vélfags. „Ég er fullviss um að ráðning Trausta gefi Vélfagi byr í seglin,“ segir Alfreð í tilkynningunni og kveðst bjartsýnn á framtíð félagsins.

Bjarmi Sigurgarðarsson og Ólöf Ýr Lárusdóttir, stofnendur Vélfags, eru ánægð á þessum tímamótum: „Fyrirtækið býr yfir miklum mannauði og þekkingu og Trausti er að okkar mati leiðtogi sem hefur bæði reynslu og kosti sem leysa slíka krafta úr læðingi. Við lítum framtíð Vélfags björtum augum enda höfum við fulla trú á að Trausti muni leiða öflugt teymi Vélfags þannig að fyrirtækið skipi sér í fremstu röð í geiranum,“ er haft eftir þeim hjónum í tilkynningunni.