Fara í efni
Fréttir

Vekra festir kaup á Dekkjahöllinni

Elín Dögg Gunnars Väljaots, Jón Trausti Ólafsson forstjóri Vekru og Kristdór Gunnarsson.

Eignarhaldsfélagið Vekra, sem meðal annars rekur bílaumboðið Öskju, hefur samið við eigendur Dekkjahallarinnar um kaup á öllu hlutafé félagsins. Kaupin eru þó háð samþykki Samkeppniseftirlitsins sem hefur fengið málið til umfjöllunar.

Dekkjahöllin er rúmlega 40 ára, stofnuð árið 1982, höfuðstöðvar fyrirtækisins hafa alla tíð verið á Akureyri og svo verður áfram. „Félagið er innflutningsaðili hjólbarða og eru helstu vörumerki þess Yokohama, Falken, Sonar og Triangle. Félagið rekur 4 starfsstöðvar, á Akureyri, Egilsstöðum og tvær í Reykjavík, í Skútuvogi og í Skeifunni. Félagið hefur verið fjölskyldufyrirtæki og er fjöldi starfsmanna um 30-40 talsins að jafnaði,“ segir í fréttatilkynningu. „Vekra er eignarhaldsfélag og er félagið meðal annars eigandi Bílaumboðsins Öskju sem er umboðsaðili Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart, Sleggjunnar sem er sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla, Lotus sem er bílaleiga og Hentar sem einbeitir sér að langtímaleigu. Ársvelta Vekru var um 25 milljarðar árið 2022 og starfsmenn félagsins ríflega 200 talsins.“

Gunnar byrjaði í bílskúrnum

„Það eru stór tímamót hjá okkur í fjölskyldunni að selja rekstur Dekkjahallarinnar sem pabbi okkar, Gunnar Kristdórsson, stofnaði í bílskúrnum heima hjá okkur árið 1982,“ segir Elín Dögg Gunnars Väljaots, fjármálastjóri Dekkjahallarinnar í tilkynningu.

„Það er þó mjög ánægjulegt að horfa til baka og sjá hve öflugt fyrirtæki honum og fjölskyldu hans hefur tekist að skapa. Nú er þó komið að tímamótum og við sjáum félagið verða samstarfsaðili öflugra fyrirtækja og við erum viss um að Dekkjahöllin verður í góðum höndum til framtíðar hjá Vekru sem hefur byggt upp afar farsæl fyrirtæki á undanförnum árum og þá horfum við sérstaklega til Öskju sem er þekkt fyrir góða þjónustu,“ segir Elín Dögg.

„Við Kristdór, bróðir minn munum áfram starfa með nýjum eigendum Dekkjahallarinnar og horfum björtum augum til samstarfsins, ég verð á Akureyri með þeim góða hóp sem hér hefur starfað, og Kristdór mun áfram stýra starfsemi okkar á Egilsstöðum. Gildi Dekkjahallarinnar er góð, fagleg og persónuleg þjónusta og við finnum fyrir ríkum stuðningi nýrra eigenda við að svo verði áfram“, segir Elín Dögg  Gunnars Väljaots.

„Fellur vel að okkar framtíðarsýn“

Vekra er eignarhaldsfélag og er félagið meðal annars eigandi Bílaumboðsins Öskju sem er umboðsaðili Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart, Sleggjunnar sem er sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla, Lotus sem er bílaleiga og Hentar sem einbeitir sér að langtímaleigu.

„Dekkjahöllin fellur vel að okkar framtíðarsýn. Hjólbarðaþjónustan er órjúfanlegur hluti af bílaviðskiptum og þjónustu og enn frekar til framtíðar þar sem rafbílar eru að taka yfir sem ráðandi orkugjafi. Dekkjahöllin á sér góða sögu um þjónustu og er landsbyggðarfélag sem við kunnum vel að meta,“ segir Jón Trausti Ólafsson forstjóri Vekru og framkvæmdastjóri Öskju.