Fara í efni
Fréttir

Veit einhver um karlinn með sixpensarann?

Lögreglan á Akureyri lýsir eftir vitni, en í tilkynningu er ekki tekið fram vitni að hverju. Um er að ræða karlmann sem klæddur var jakka og sixpensara í miðbæ Akureyrar, göngugötunni, aðfaranótt sunnudagsins 30. október síðastliðinn, um kl. 02:35.

„Ef þú telur þig vita hver maðurinn er máttu gjarnan senda okkur skilaboð á messenger eða koma við á lögreglustöðinni í Þórunnarstræti 138,“ segir á Facebook síðu lögreglunnar.