Fara í efni
Fréttir

Vegleg gjöf mæðra til fæðingadeildar SAk

Frá afhendinigu gjafarinnar. Guðrún Linda, stóra systir Maríu Lindu, og Ingibjörg Jónsdóttir, deildarstjóri fæðingadeildar. Mynd: SAk.

Fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri fékk á dögunum afhenta veglega gjöf, átta sjónvörp sem sett verða upp á öllum herbergjum deildarinnar, ásatm tveimur hárblásurum. 

Það voru skjólstæðingar deildarinnar, Stefanía Steinsdóttir og Sólveig Helgadóttir, sem færðu deildinni þessa rausnarlegu gjöf. Gjöfin er í minningu dóttur Stefaníu og Sólveigar, Maríu Lindu, sem fæddist andvana á fæðingadeild SAk.

„Við starfsfólk fæðingadeildar erum afar þakklát fyrir þessa veglegu gjöf og ekki síður þann hlýhug sem gjöfinni fylgir,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, deildarstjóri fæðingadeildar í frétt á vef Sjúkrahússins.