Fara í efni
Fréttir

Vegið að framtíð og öryggi landsbyggðanna

Reykjavíkurflugvöllur. Mynd af vef Isavia

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í 14 sveitarfélögum sendu í gær frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þungum áhyggjum er lýst vegna áforma Reykjavíkurborgar og innviðaráðuneytisins um að hefja jarðvegsframkvæmdir í Skerjafirði vegna fyrirhugaðrar íbúðauppbyggingar. Þau áform setji framtíð Reykjavíkurflugvallar, og þar með framtíðaröryggi landsbyggðanna í uppnám.

„Áformin ganga gegn þeim loforðum sett voru í samkomulagi milli Reykjavíkurborgar og ríkisins árið 2019 um að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar þar til nýr flugvöllur sé tilbúin til notkunar. Þar er gert ráð fyrir að rannsóknum ljúki um gerð nýs flugvallar árið 2024 og í kjölfarið verði hafist handa við slíka uppbyggingu reynist það fýsilegur kostur,“ segir í fréttatilkynningu frá oddvitunum, þar sem segir að þeir muni leggja yfirlýsinguna fram til samþykktar í sveitarstjórnum landsins.

Oddvitarnir segja að byggð í Skerjafirði muni þrengja enn frekar að Reykjavíkurflugvelli og rýra notagildi hans vegna breytinga á vindafari. Þeir leggja áherslu á að öruggt innanlandsflug sé mikilvægt búsetuskilyrði fólks úti á landi og tryggi atvinnulífi, heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslu og íbúum aðgengi að mikilvægri þjónustu sem ætluð er öllum landsmönnum.

Ályktun oddvitanna 14 er svohljóðandi:

[Sveitarfélagið] lýsir yfir þungum áhyggjum vegna ákvörðun Innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu í Skerjafirði. Með ákvörðuninni er samkomulag ríkisins og Reykjavíkurborgar frá 2019 haft að engu þar sem forsenda þess var að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar þar til nýr flugvöllur er tilbúinn til notkunar.

Reykjavíkurflugvöllur sinnir mikilvægu hlutverk og er lífæð landsbyggðanna. Með uppbyggingu í Skerjafirði er vegið að framtíð og öryggi landsbyggðanna gagnvart sjúkraflugi og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem og aðgengi almennings, atvinnulífi og stjórnsýslu að mikilvægum innviðum.

[Sveitarfélag] skorar á borgarstjórn og Innviðaráðherra að fresta ákvörðuninni þar til að sú vinna sem lagt var upp með í fyrrgreindu samkomulagi sé lokið og framtíðarlausn innanlandsflugs tryggð.

Undir yfirlýsinguna rita:

  • Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
  • Ragnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð
  • Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum
  • Sigríður Guðrún Hauksdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjallabyggð
  • Almar Marínósson, formaður Sjálfstæðisfélags Þórshafnar
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi
  • Freyr Antonsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Dalvíkurbyggð
  • Baldur Smári Einarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík
  • Jóhann Birkir Helgason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ
  • Guðmundur Haukur Jakobsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Húnabyggð
  • Hafrún Olgeirsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi
  • Gauti Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Hornafirði
  • Ásgeir Sveinsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vesturbyggð
  • Gísli Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði