Fara í efni
Fréttir

Veðurviðvaranir fram á sunnudagskvöld

Staðan síðdegis í dag, gular og appelsínugular viðvaranir fyrir meirihlutalandsins. Mynd af vedur.is.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir mestan hluta landsins í dag og á morgun. Gangi veðurspár eftir mun veður versna á Norðurlandi eystra um fjögurleytið í dag með suðaustan 15-23 metrum á sekúndu og vindhviðum að 35-40 m/sek. við fjöll. Veðrið gæti reynst varasamt ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindum, eins og það er orðað í spá Veðurstofunnar.

Svona lítur viðvaranakortið út eftir hádegi á morgun, laugardag. Mynd af vedur.is.

Búist er við mikilli úrkomu og hláku sem getur valdið vatnavöxtum, krapaflóðum og skriðuhættu, sérstaklega á Suður-, Suðausturlandi og Austfjörðum. Vatnavextir gætu orðið víða vegna úrkomu og hlýinda og bendir Veðurstofan á að mikilvægt sé að hreinsa niðurföll og fráveituskurði. Aðstæður á vegum geta orðið erfiðar og eru ökum enn hvattir til að aka varlega.

Veðurviðvaranir um allt land á morgun

Um tíma síðdegis í dag er appelsínugul veðurviðvörun fyrir hálendið og hluta Vestfjarða, en gul viðvörun annars staðar á landinu, meðal annars á Norðurlandi eystra. Gul viðvörun gildir síðan áfram fyrir allt landið alveg fram á sunnudagskvöld.

Veðurspá gefin út í morgun fyrir landið í heild er svohljóðandi: 

  • Gengur í suðaustan 18-25 með rigningu seinnipartinn, hvassast norðvestantil, úrhellisrigning suðaustantil. Hægari og þurrt fyrir austan fram undir kvöld. Hiti víða 4 til 10 stig í kvöld og að 14 stigum norðantil í nótt.
  • Sunnanátt seint í nótt, 18-23 suðvestanlands en 23-30 norðvestantil. Sunnan og suðvestan 13-20 um hádegi á morgun og dregur úr úrkomu. Suðvestan 15-23 vestantil annað kvöld og skúrir. Hiti 0 til 4 stig annað kvöld.