Vara við „svikamyllu í veitingageiranum“
Verkalýðsfélagið Eining-Iðja í Eyjafirði varaði í dag við „gervistéttarfélaginu“ Virðingu og tekur þar með undir með Eflingu stéttarfélagi, sem gagnrýndi Virðingu harðlega í fyrradag.
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsti í dag einnig yfir fullum stuðningi við málflutning Eflingar um Virðingu, svo og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
„Gervistéttarfélagið Van „Virðing“ sem atvinnurekendur á veitingamarkaði stofnuðu er komið á Akureyri sem er eitt af félagssvæðum Starfsgreinasambands Íslands. En þetta er svívirðileg aðför að kjörum verkafólks sem starfa á veitingamarkaði!“ skrifaði Vilhjálmur á Facebook í dag og bætti við: „Ég sem formaður Starfsgreinasambands Íslands tek svo sannarlega undir áhyggjur þeirra sem hafa fjallað að undanförnu um hið „nýja stéttarfélag“ sem ber nafnið „Virðing.““
Skjáskot af forsíðu vefs Alþýðusambands Íslands í dag þar sem fjallað eru Virðingu.
Segja tilganginn að skerða laun og réttindi
Á vef Einingar-Iðju er í dag vitnað í tilkynningu frá Eflingu, þar segir m.a. að Virðing sé ekki „raunverulegt stéttarfélag heldur svikamylla rekin af atvinnurekendum í þeim tilgangi að skerða laun og réttindi starfsfólks. Efling hefur staðfesta vitneskju um tilvik þar sem starfsfólki hefur verið sagt af atvinnurekanda að það eigi að starfa undir kjarasamningi Virðingar við atvinnurekendafélagið SVEIT. Tilgangur þess er að fá starfsfólk til að samþykkja lægri laun og verri kjör.“
Eining-Iðja biður allt starfsfólk í veitingageiranum sem hefur fengið boð frá sínum atvinnurekanda um að taka þátt í þessum svikum að hafa samband við félagið án tafar með því að fylla út þetta eyðublað
„Á heimasíðu Eflingar segir að atvinnurekendur hafi þóst vera verkafólk þegar þeir fengu ekki kröfum sínum framgengt við Eflingu,“ segir einnig á vef Einingar-Iðju. „SVEIT hefur á liðnum árum barist fyrir gerð kjarasamnings þar sem laun starfsfólks á veitingahúsum verði lækkuð miðað við núgildandi lögvarin kjör í kjarasamningi Eflingar við Samtök atvinnulífsins. SVEIT reyndi í fyrstu að sannfæra Eflingu um að ganga til kjaraviðræðna við sig á þeim forsendum, en því hafnaði félagið. Dró SVEIT þá Eflingu fyrir Félagsdóm, sem úrskurðaði að Eflingu bæri engin skylda til að semja við SVEIT og staðfesti jafnframt að ákvæði kjarasamnings Eflingar við SA væru lögbundin lágmarkskjör í geiranum. Í stjórn Virðingar sitja þrír einstaklingar, þar af tveir sem koma beint að rekstri veitingastaða sem eigendur eða stjórnarmenn. Ekki kemur á óvart að þeir veitingastaðir eru einmitt á félagaskrá SVEIT.“
Ótal kjaraskerðingar
Kjarasamningur Virðingar við SVEIT felur í sér verulegar skerðingar á launum og réttindum starfsfólks, segir á vef Einingar-Iðju. Þar á meðao, segir þar:
- Dagvinnutími lengdur um þrjá klukkutíma eða frá kl. 17:00 til kl. 20:00, sem þýðir að þessa klukkutíma fær starfsfólk ekki greitt vaktaálag. Sama á við um laugardaga frá 08:00-16:00.
- Kvöldvaktaálag er lækkað úr 33% í 31%.
- Almennur starfsmaður á veitingahúsi með 1 árs starfsreynslu í geiranum mun, ef hann vinnur á kjörum SVEIT og Virðingar, verða fyrir launalækkun um 52.176 á mánuði eða sem nemur 10%.
- Orlofsréttindi eru færð niður í lögbundið 24 daga lágmark, og öll orlofsávinnsla umfram það sem Efling hefur samið um við SA felld niður.
- Réttur til launa í veikindum er skertur.
Myndin hér að neðan er birt á vef Einingar-Iðju og þar segir að þetta séu einungis nokkur dæmi af ótal kjaraskerðingum sem samningurinn feli í gær.
Á vef Einingar-Iðju segir að félagið muni „aðstoða allt verkafólk sem eru fórnarlömb þessarar svikamyllu, óháð því hvort þau hafa skrifað undir ráðningarsamning þar sem vísað er til gervi-kjarasamnings Virðingar og SVEIT. Verkafólk þarf ekki að sætta sig við að vera blekkt á þennan hátt, sama hvað atvinnurekandi kann að segja þeim. Félögin munu grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til að koma í veg fyrir svik og blekkingar SVEIT og Virðingar gegn starfsfólki veitingahúsa.“
SVEIT, Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, hafnaði í yfirlýsingu í gær ásökunum þess efnis að verið sé að brjóta á lögbundnum rétti starfsfólks með samningum. Á mbl.is kemur fram í dag að forsvarsfólk Virðingar hafi ekki viljað tjá sig um málið þegar eftir því hafi verið leitað.