Fara í efni
Fréttir

Vann 8,9 milljónir í Vikinglottóinu

Ljónheppinn viðskiptavinur Hagkaupa við Furuvelli á Akureyri varð 8,9 milljónum króna ríkari í kvöld þegar dregið var í Víkinglottóinu.

Hvorki fyrsti né annar vinningur gengu út að þessu sinni en einn hlaut þriðja vinning, sá sem keypti miða í verslun Hagkaupa með tölunum 10, 13, 28, 39, 44 og 45, og Víkingatölunni 1 að auki.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur einnig fram að fimm hafi fengið annan vinning í svokölluðum Jóker. Hlaut hver og einn 100.000 krónur. Jókertölur kvöldsins voru 1, 9, 8, 3 og 7.

  • Víkinglotto (sem lengi kallaðist Víkingalottó) hófst hér á landi árið 1993 og er samstarf tíu landa sem eru Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Eistland, Lettland, Litháen, Slóvenía, Belgía og Ísland. Alla miðvikudaga er dregið um hundruð milljóna, segir á vef Íslenskrar getspár.