Fara í efni
Fréttir

Valgerður keppir við Berglindi um 2. sætið

Valgerður Gunnarsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, gefur kost á sér í 2. sæti lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi þingiskosningar.

Valgerður Gunnarsdóttir, skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík og fyrrverandi alþingismaður, sækist eftir 2. sæti á lista  Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Hún sendi frá sér tilkynningu þessa efnis í dag.

Þar með liggur fyrir að kosið verður á milli tvegga, hið minnsta, bæði varðandi 1. og 2. sæti listans. Það verður gert á tvöföldu kjördæmisþingi sem fram fer í Mývatnssveit næstkomandi sunnudag.

Njáll Trausti Friðbertsson, núverandi oddviti flokksins í kjördæminu og formaður fjárlaganefndar, og Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri laxeldisfyrirtækisins Kaldvíkur, gefa báðir kost á sér í efsta 1. sæti og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður, sækist áfram eftir 2. sæti listans. Hún staðfesti það við Akureyri.net í kvöld.

Valgerður Gunnarsdóttir sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2013 til 2017 og hafði áður verið virkur þátttakandi í sveitarstjórnarmálum, m.a. sem forseti bæjarstjórnar Húsavíkur. 

Tilkynning Valgerðar er svohljóðandi:

Valgerður Gunnarsdóttir, skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík, stjórnarmaður í RARIK og fyrrverandi alþingismaður, sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Valgerður hefur víðtæka reynslu á sviði stjórnsýslu og menntamála, auk sterkra tengsla við atvinnulíf á svæðinu.

„Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum til að efla og berjast fyrir bættum innviðum í mínu víðferma kjördæmi, atvinnulífi, menntunarmöguleikum, og ekki síst lífsgæðum eldra fólks,“ segir Valgerður. „Verkefnin sem fram undan eru, eru að ná tökum á verðbólgunni og því háa vaxtastigi sem við höfum mátt að lifa við síðustu misseri. Sækja þarf fram í uppbyggingu innviða, samgöngu-, raforku- og fjarskiptakerfum og tryggja þannig undirstöðu fyrir aukna verðmætasköpun" Með tveggja áratuga reynslu sem skólameistari og þátttakandi í stjórnmálum hef ég skýra sýn á hvernig við getum styrkt menntakerfið, sérstaklega iðn- og verknám, og skapað fleiri tækifæri fyrir ungt fólk í heimabyggð.“
 
Valgerður sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2013-2017 og hafði áður verið virkur þátttakandi í sveitarstjórnarmálum, m.a. sem forseti bæjarstjórnar Húsavíkur. Hún hefur lengi barist fyrir aukinni samvinnu menntakerfis og atvinnulífs til að tryggja hagkvæma menntun sem nýtist á vinnumarkaði. Valgerður var skólameistari Framhaldsskólans á Laugum frá árunum 1999 til 2013 og tók við stjórn Framhaldsskólans á Húsavík eftir að hún lét af þingmennsku árið 2017.
 
„Norðausturkjördæmi þarf öfluga fulltrúa sem þekkja svæðið vel og eru tilbúnir í þau verk sem þarf að vinna og hugsa í framtíðarlausnum,“ segir Valgerður Gunnarsdóttir.