Fara í efni
Fréttir

Úthluta 2 milljónum úr Minningarsjóði Baldvins

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Fjórum styrkjum, samtals tveimur milljónum króna, var úthlutað úr Minningarsjóði Baldvins Rúnarssonar í gær, 31. maí. Þá var fimm ár síðan Baldvin lést langt fyrir aldur fram, aðeins 25 ára, eftir baráttu við krabbamein.

„Líkt og áður var lögð áhersla á að styrkja málefni sem voru Baldvini hugleikin og styðja þannig það góða starf sem unnið er víða á Akureyri og í nágrenni,“ segir í tilkynningu frá sjóðnum.

Til vinstri: Arnar Geir Halldórsson stjórnarmaður í minningarsjóðnum og Erla Lind Friðriksdóttir frá Berginu Headspace.
Ti hægri: Ragnheiður Jakobsdóttir stjórnarmaður í minningarsjóðnum og móðir Baldvins heitins, til vinstri, og Eva Björg Óskarsdóttir frá KAON.

  • Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON) hlýtur styrk upp á 500.000 kr. sem ætlað er í heilsueflingarsjóð KAON sem er samstarfsverkefni KAON og Minningarsjóðs Baldvins. Markmiðið er að hvetja krabbameinsgreinda til líkamsræktar og auka fræðslustarf um heilsurækt á vegum KAON.
  • Bergið Headspace hlýtur styrk upp á 500.000 kr. Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri og hóf nýverið störf á Akureyri og er styrknum ætlað að styðja við starfið á Akureyri.

Til vinstri: Hermann Helgi Rúnarsson, stjórnarmaður í minningarsjóðnum og bróðir Baldvins heitins, og Nói Björnsson, formaður íþróttafélagsins Þórs.
Til hægri: Ingólfur Árnason, stjórnarmaður í minningarsjóðnum, og Linda Guðmundsdóttir íþróttafulltrúi hjá Þór.

  • Íþróttafélagið Þór hlýtur styrk upp á 500.000 kr. til að koma af stað innan félagsins verkefninu Allir með sem sem er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ OG Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) sem miðar að því að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nærumhverfi.
  • Aðalstjórn Þórs hlýtur styrk upp á 500.000 kr. sem er ætlað til búnaðarkaupa sem munu efla umgjörð í kringum heimaleiki Þórsliða í öllum greinum félagsins.

Styrkirnir voru afhentir við stutta athöfn í Hamri, félagsheimili Þórs. Þar kom fram að með styrkveitingunum að þessu sinni hefur verið úthlutað rúmum 13 milljónum króna frá því sjóðurinn var stofnaður fyrir fimm árum.