Upplýsingar veittar á ný og fyrsta skipið kemur
Upplýsingamiðstöð ferðamanna verður opnuð í Hofi á ný í dag, laugardaginn 1. apríl, og fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins er einnig væntanlegt. Hvorug þessi tíðindi eru aprílgabb - alveg satt!
Í upplýsingamiðstöðinni er fyrst og fremst lögð áhersla á að miðla upplýsingum til ferðamanna um Akureyri og næsta nágrenni, að því er segir í tilkynningu, en ferðaþjónustuaðilar um allt Norðurlandi eru hvattir til að koma með kynningarefni sitt í Hof svo sé hægt að segja frá öðrum helstu dásemdum landshlutans, eins og það er orðað.
Upplýsingamiðstöðin verður opin alla daga frá kl. 10.00 til 15.00 en afgreiðslutíminn lengist yfir hásumarið, frá 1. júní til 31. ágúst, og verður þá frá klukkan 8.00 til 16.00.
Það er vel við hæfi að opna upplýsingamiðstöðina í dag því þá er einmitt von á fyrsta skemmtiferðaskipi ársins til Akureyrar, sem fyrr segir. Þar er á ferðinni skipið Bolette með rétt um 1.400 farþega og 600 manna áhöfn.
Stefnir í metsumar
Það stefnir í metsumar hvað varðar komu skipa og farþega þeirra. Spáð er um 25% fjölgun gesta með skemmtiferðaskipum frá því sem var fyrir heimsfaraldur Covid-19 eða um 185.000 gestum núna, en til samanburðar komu um 150.000 með þessum hætti til bæjarins árið 2019. Skipakomum til Eyjafjarðar fjölgar um 40% eða þar um bil. Þær voru 199 árið 2019 en verða um 280 í sumar með viðkomu á Akureyri, í Hrísey og Grímsey, og á Hjalteyri en þetta verður í fyrst sinn sem skemmtiferðaskip leggur leið sína til Hjalteyrar.
Það eru Hafnasamlag Norðurlands, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar. Þetta er sami hópur og stóð að opnun hennar síðasta sumar en henni var upplýsingamiðstöðinni fyrir þremur árum þegar ríkið hætti að styðja reksturinn með fjárframlagi.