Fara í efni
Fréttir

Ungmenni frá Akureyri á vinabæjamóti í Randers

Hópurinn sem fór frá Akureyri til Randers. Myndir með frétt: María H. Tryggvadóttir

Vinabær Akureyrar er Randers í Danmörku, eins og við erum reglulega minnt á í desember þegar vinir okkar þar í bæ útvega okkur jólatré á Ráðhústorgið. Það er fleira sem felst í því að vera vinabær, en nýlega fór fram vinabæjamót ungmenna þar sem Akureyringar áttu flotta fulltrúa.

Á vef Akureyrarbæjar segir að 85 ungmenni á aldrinum 16 - 25 ára frá norrænu vinabæjunum Lathi í Finnlandi, Vesterås í Svíþjóð, Ålesund í Noregi, Akureyri og að sjálfsögðu Randers hafi hist á mótinu. Hópurinn frá Akureyri taldi 17 ungmenni. Samhliða móti ungmennanna fór fram nokkru styttra vinabæjamót stjórnmála- og embættismanna frá öllum bæjunum auk þess sem fulltrúar Norræna félagsins notuðu tækifærið til að koma saman.

 

Rölt um steini lagðar götur Randers.

Vinabæjasamstarfið milli þessara bæja á sér langa sögu og þátttaka Akureyrar teygir sig allt aftur til ársins 1947. Það byggir á traustum grunni og er eitt það virkasta sem um getur á þessu sviði. Þema mótsins var samfélagið með áherslu á menningu, loftslagsbreytingar og sjálfbærni.

Ungmennin tóku m.a. þátt í skapandi vinnustofum, heimsóknum og skoðunarferðum á meðan að stjórnmála- og embættismennirnir heimsóttu menningarstofnanir, íþróttamannvirki, útivistarsvæði auk þess að ræða tækifæri og þær áskoranir sem bæirnir eiga við að etja sem og möguleika í samstarfi sín á milli, segir enn fremur í frétt bæjarins um ferðina. 

Hér má lesa frétt Akureyrarbæjar um ferðina og sjá fleiri myndir.